S
Þór/KA
1 3
Breiðablik
A-deild 2026 ·5. umferð ·VÍS völlurinn ·20.05.2026
3

Blikastelpur fóru norður yfir heiðar og mættu liði Þórs/KA í fimmtu umferð bestudeildarinnar. 

Þórsarar byrjuðu leikinn ágætlega og áttu fyrsta færi leiksins og ágætar rispur í fyrri hálfleik en heild yfir voru Blikarnir mun betri og hefðu átt að setja nokkur mörk, en það var sama hvað þær sóttu inn vilti boltinn ekki og markmaður Þórsara átti mjög góðan leik og bjargaði þeim oft mjög vel.

Seinni hálfleik byrjaði ekki ósvipað þeim fyrri, Þórsstelpur áttu fyrsta færi leiksins en náðu ekki að gera sér mat úr því og nokkrum mínutum seinna eða á þeirri 54 komust Blikarí álitlega sókn sem endaði með því að brotið var á Hrafnhildi inni í vítateig og umsvifalauts dæmt víti.  Það var svo fyrirliðinn okkar AglaMaría sem fór á punktinn og skoraði af miklu öruggi, staðan orðin 0-1 og það má segja að við þetta hafi loftið svolítið farið úr heimakonum.  

Við tóku reglulegar áætlunarferðir Blika upp völlinn sem að lokum skiluðu tveimur mörkum, fyrst frá Hrafnhildir á 67 mínútu eftir frábært samspil hennar og ÖgluMaríu, og síðan átti fyrirliðinn enn eina stoðsendinguna á Edith á 69 mínútu. 

Norðankonur náðu svo inn marki með lokasparki leiksins og lokatölur því 1-3 fyrir Breiðablik

Þótt að það hafi tekið smá tíma að brjóta ísinn þá var þetta mjög góð frammistaða og gott svar eftir að hafa dottið út úr bikarnum um helgina. Eftir að fyrsta markið kom þá var í raun aldrei spurning hvernig leikurinn færi, Blikastelpur voru yfir á öllum sviðum og sigurinn hefði átt að verða stærri.  

Þar sem ÍBV tapaði fyrir FH þá erum við einar á toppnum með fullt hús stiga eftir 5 umferðir.  Næsti leikur er á mánudaginn á móti FH sem hafa verið sjóðandi heitar eftir rólega byrjun og hafa unnið 3 síðustu leiki sína í deildinni.  Þessi leikur er minningaleikur um Bryndísi Klöru og styrkarleikur fyrir minningarsjóðinn.  Það verður dagskrá frá kl. 17:30, Páll Óskar, Kristmundur Axel og Húbba Búbba koma fram og tekið verður við framlögum í minningarsjóðinn á vellinum en einnig er hægt að leggja inná þennan reikning: 0133-15-013080 kt 410284-1389 og styrkja málefnið.

 

Halldór