Blikakonur gerðu 1-1 jafntefli við Þrótt í Laugardalnum á mánudagskvöld og tryggðu sér þar með toppsæti Bestu deildarinnar að loknum 18 leikjum, áður en deildinni er skipt upp.
Það var mikið undir hjá báðum liðum. Blikar þurftu stig til að endurheimta toppsætið af FH á meðan Þróttarar voru að berjast fyrir því að koma sterkar inn í bikarúrslitaleikinn.
Leikurinn fór nokkuð rólega af stað en eftir um stundarfjórðung fóru Blikar að ná betri tökum á leiknum. Fyrsta alvöru færi leiksins kom á 15. mínútu þegar Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir átti hættulega fyrirgjöf inn í teig. Sóknin hélt áfram og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir komst í góða stöðu en tilraun hennar endaði í hornspyrnu.
Blikar héldu áfram að skapa. Á 22. mínútu gerði Aglamaría Albertsdóttir vel fyrir utan vítateig Þróttar, lék á varnarmann og kom boltanum inn á Hrafnhildi Ásu sem náði ekki nægilega góðu skoti og boltinn fór yfir markið. Blikar voru á þessum kafla sterkari aðilinn og mun líklegri til þess að skora.
Það gerðist loksins á 42. mínútu. Eftir að Þróttarar hreinsuðu hornspyrnu frá barst boltinn aftur inn í vítateiginn þar sem Katelyn Duong lét vaða í fyrstu snertingu. Skotið var lúmskt og fór niður í hornið fram hjá Mollee Swift í marki Þróttar. Blikar tóku því 1-0 forystu inn í hálfleikinn.
Fjörugri seinni hálfleikur
Blikakonur byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og virtust ætla að ganga á lagið, en Þróttarar unnu sig fljótlega aftur inn í leikinn.
Bríet Fjóla Bjarnadóttir átti hörkuskot á 51. mínútu fyrir heimakonur rétt framhjá. Tíu mínútum síðar kom svo jöfnunarmarkið. Þróttur fékk hornspyrnu, Sæunn Björnsdóttir sendi frábæran bolta inn á markteiginn og Sierra Marie Lelii reis hæst og skallaði af krafti í netið.
Eftir jöfnunarmarkið opnaðist leikurinn talsvert og bæði lið fengu tækifæri til að vinna. Þróttarar voru hættulegir og Taylor Kane varði mjög vel þegar Kayla Marie Rollins komst í mjög gott færi undir lok leiksins.
Blikar áttu þó besta færið til að stela öllum þremur stigunum. Á 86. mínútu barst boltinn inn í teig Þróttar þar sem Aglamaría lét vaða en skot hennar small í stönginni. Aglamaría var síógnandi í leiknum og var besti maður vallarins. Hún kom sér og samherjum sínum í góðar stöður ítrekað og var ansi nálægt því að tryggja Blikum sigurinn.
Þróttarar fengu svo dauðafæri hinum megin í uppbótartíma þegar Jelena Tinna Kujundzic fékk boltann við fjærstöng eftir aukaspyrnu en setti boltann framhjá. Þar má segja að Blikar hafi sloppið með skrekkinn.
Getum spilað betur, en toppsætið er okkar!
Jafntefli verður að teljast nokkuð sanngjörn niðurstaða. Blikar voru sterkari stóran hluta fyrri hálfleiks og sköpuðu sér fleiri færi, en Þróttarar komu af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og hefðu sömuleiðis getað tekið öll þrjú stigin.
Það er heldur ekki hægt að horfa fram hjá því að Blikaliðið hefur aðeins misst taktinn síðustu vikur. Liðið hefur nú farið þrjá deildarleiki í röð án sigurs og Ian Jeffs viðurkenndi eftir leik að liðið þyrfti að finna taktinn aftur. Baráttan og viljinn voru hins vegar mun sýnilegri í Laugardalnum en í nokkrum af síðustu leikjum.
Breiðablik endar venjulega hluta mótsins á toppnum.
Blikar og FH eru jöfn með 37 stig en Blikar sitja fyrir ofan Hafnfirðinga á betri markatölu og munurinn er aðeins eitt mark. Það eina mark skiptir heldur betur máli því staðan þýðir að þegar Blikar og FH mætast í úrslitakeppninni verður leikurinn í Kópavoginum en ekki í Kaplakrika.
Nú eru fimm leikir eftir, fimmtán stig í pottinum og ekkert svigrúm til að slaka á.
Toppurinn er okkar. Nú þarf að verja hann.
-KBH