Breiðablik gerði góða ferð til Vestmannaeyja þegar liðið lagði ÍBV 0-3 á Hásteinsvelli í Bestu deild kvenna. Með sigrinum fóru Blikar aftur á topp deildarinnar og sýndu enn og aftur styrk sinn með öruggri frammistöðu á erfiðum útivelli. Þetta var kærkomið eftir nokkra lægð í undanförnum leikjum.

Leikurinn fór af stað með miklum krafti hjá Blikum og strax á 8. mínútu var boltinn kominn í netið. AglaMaría lagði grunninn að markinu með öflugri sókn upp vinstri vænginn og kom boltanum fyrir markið þar sem Líf Joostdóttir van Bemmel kláraði snyrtilega í fjærhornið.

Blikar létu þar ekki staðar numið. Á 19. mínútu skoraði Ólöf Sigríður Kristinsdóttir annað markið eftir góða hornspyrnu Sunnu og aðeins fjórum mínútum síðar var Ólöf aftur á réttum stað. Líf sendi þá góða fyrirgjöf frá hægri og Ólöf skallaði boltann í netið. Staðan orðin 0-3 eftir aðeins 23 mínútur og Blikar komnir með öll völd á vellinum.

Þessi frábæri kafli í fyrri hálfleik lagði grunninn að sigrinum. Blikar voru með yfirburði framan af, skoruðu þrjú góð mörk og hefðu jafnvel getað bætt við áður en flautað var til hálfleiks. Eyjakonur komu sterkar til leiks í síðari hálfleik og sóttu nokkuð stíft og á köflum fannst fréttaritara Blikar.is að okkar stelpur lægju full mikið til baka.  En allt kom fyrir ekki og forrystan sem við náðum í fyrri hálfleik dugði til sigurs að þessu sinni.

Líf Joostdóttir van Bemmel var öflug í leiknum, skoraði fyrsta markið og lagði upp það þriðja. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir var sömuleiðis öflug og gerði tvö mörk með stuttu millibili, sannkölluð framherjamörk sem gerðu út um leikinn.

Niðurstaðan var öruggur 0-3 útisigur á erfiðum velli. Þrjú stig í hús, Blikar aftur á toppnum. En Fh á þegar þetta er skrifað leik til góða.(sem endaði jafntefli og við í toppsætinu)

Nú tekur við nokkurra vikna hlé á deildinni vegna verkefna U19-landsliðsins. Næsti leikur Blika er ekki fyrr en 9. júlí þegar liðið mætir Fram í Úlfarsárdal. Þar bíður mikilvægt verkefni þar sem Blikar freista þess að halda áfram á sömu braut og fylgja eftir góðum útisigri í Eyjum.

-B