S
Breiðablik
3 2
Valur
A-deild 2026 ·4. umferð ·Kópavogsvöllur ·11.05.2026
42
1
7

Breiðablik tók á móti Valskonum í 4. umferð Bestudeildar kvenna.  Fyrir leikinn voru okkar stelpur með fullt hús stiga en okkar gömlu erkifjendur með 3 stig, enda á annari vegferð en undanfarin ár.

Byrjunarliðið var svona skipað, óbreytt frá síðasta leik: Heiða (m), Elísa, Elín H, Agla María (f), Duong, Hrafnhildur Ása, Edith, Karítas, Kristín Dís, Líf, Barbara Sól.

Bekkurinn: Taylor (m), Mikaela Nótt, Ólöf S, Bryndís, Dórothea, Guðrún, Lilja Þórdís, Sunna Rún,  Særún L.

Eins og sjá má, eru tvær mjög öflugar, fyrrverandi leikmenn Vals, þær Elísa og Bryndís. Hjá Valskonum er fyrr um Blikinn, Helga Rut í byrjunarliðinu.

Fínasta fótboltaveður og aðstæður í toppmálum. Reyndar einhver vindur sem truflar aðeins flæðið.

Það tók Breiðablik einungis 2:15 sekúndur að brjóta ísinn, með sinni fyrstu alvöru tilraun á markið, markið skoraði Líf Joostdóttir van Bemmel, eftir slæm mistök markvarðar, en það þarf að klára þau færi líka. Draumabyrjun. Valskonur gerðu smá atlögu að okkar marki, strax í kjölfarið, án þess að fá eitthvað hættulegt færi, á móti geystumst við upp og Agla María var næstum búinn að bæta við marki. 

Gestirnir voru næstu mínútur mun grimmari á miðsvæðinu og átu okkur konur trekk í trekk, þær uppskáru síðan mark á 11. mínútu þegar Margrét Brynja, setti hann laglega í bláhornið.  Margrét bætti síðan við öðru marki fimm mínútum síðar, þegar Valssóknin bókstaflega labbaði í gegnum vörnina. 

Tveim mínútum síðar fékk Hrafnhildur, Valsari, beint rautt fyrir hártog á Barböru, hárréttur dómur, við þetta hrestust okkar stelpur og tóku öll völd á vellinum. Gekk samt ílla að skapa sér alvöru færi, en nokkur mjög efnileg hálffæri. Það var ekki fyrr en undir lok hálfleiksins að Hrafnhildur Ása fékk fínt skotfæri, en skotið fór rétt framhjá. Breiðablík fór í hálfleikinn, marki undir 1-2 eftir frekar bit- og andlausan fyrri hálfleik.

Engar breytingar voru gerðar í hálfleik. Seinni hálfleikurinn byrjaði svipað og sá fyrri endaði, Blikakonur mikið meira með boltann, á vallarhelmingi Vals,  án þess að skapa sér nokkuð bitastætt.  Það var lítið að frétta sóknarlega og Breiðablik gerði tvöfalda skiptingu, þegar bakverðirnir Barbara Sól og Elísa fóru útaf og inná komu Ólöf Sigríður og Sunna Rún.  10 mínútum síðar var enn bætt í sóknina þegar Bryndís Arna kom inn á fyrir Katelyn Duong. 

Það var sama andleysið í gang, Blikunum gekk ílla að hemja boltann í vindinum og áttu Valur svör við öllum okkar aðgerðum, gestirnir voru svo sannarlega ekki að hugsa um neitt annað en að verja forystuna. 

Á 83. mínútu dró loksins til tíðinda, þegar Hrafnhildur Ása átti bylmyngsskot í stöngina og munaði engu að Lif næði frákastinu. Sóknin fór að þyngjast og það má segja að markið hafi legið í loftinu. Hrafnhildur átti gott skot en markvörður Vals varði vel. 89. mínútu kom Lilja Þórdís inn á fyrir Kristínu Dís. 

Sóknarþunginn skilaði loks sínu, þegar Agla átti geggjaða aukaspyrnu og Sunna Rún stangaði boltann af festu í netið.  2-2 staðan og markið var sannkölluð vítamínssprauta, skyndilega opnuðust flóðgáttir og nú komu skotin á færibandi. Og viti menn, Valur  skoraði sjálfsmark á loka sekúndunum. Þetta var bókstaflega síðasta spyrna leiksins.  Breiðablik fór með sigur, en maður lifandi, þetta var tæpt.

Næsti leikur hjá okkar konum er á Akureyri þegar við heimsækjum Þór/KA, 20. maí.

Kristinn