Þá er loksins komið að næsta heimaleik Blikakvenna, þegar þær taka á móti Víkingum í 11. umferð Bestu deildar. Leikurinn verður á Eikarvelli, 15. júlí klukkan 19:15.

Það er mikilvægt að við svörum skelfilegu tapi í síðustu umferð og sýnum og sönnum að við erum besta kvennalið landsins Við unnum þær í fyrri umferðinni 2-4 og sýndum þar virkilega góðan leik.  Því miður getur okkur nýjasti leikmaður ekki verið með okkur, þar sem félagaskiptaglugginn opnar ekki fyrr en degi seinna.  En við ættum samt að vera klárar í bátana og klára þennan leik með stæl og setja pressu á toppliðið.

Til þess að ná því, þá hvetjum við alla til að kíkja leikinn, næla sér í einn nýgrillaðan borgara úr sjoppunni og hvetja okkar stúlkur til dáða, þær eiga það skilið.

 

ÁFRAM Breiðablik 

 

KI