Þá er komið að næsta Evrópuleik á Kópavogsvelli en á morgun (Miðvikudag) kemur rúmenska liðið, FK Csíkszereda Miercurea Ciuc í heimsókn.
Rúmenska liðið er ung að árum, stofnað 2018 en hefur risið hratt og farið nokkuð hratt upp þær 3 deildir sem spilaði er í í Rúmeníu. Frá því að þær komust í efstu deild (Superliga) árið þá hafa þæri verið í 2-4 sæti.
Þetta eru fyrstu leikir félagsins í Evrópukeppni og það er töluvert látið með það úti að þetta séu fyrstu skrefin í Evrópuævintýri félagsins. Þrátt fyrir það eru nokkrir leikmenn félagsins með Evrópureynslu, Jehona Shala frá Kosovo á nokkra leiki í riðlakeppni meistaradeildarinnar með Vllaznia frá Albaníu og svo vill svo skemmtilega til að Andrea Herczeg á leik á Kópavogsvelli þegar hún spilaði með FCM Târgu Mureș gegn Blikastelpum þá aðeins 15 ára gömul.
Þrátt fyrir að reynsla og saga Blika í Evrópu sé meiri þá þýðir það ekki að þetta verði auðveldur leikur. Þær Rúmensku eru nýbyrjaðar í deildarkeppnini þetta árið og unnu sinn fyrsta leik þar á laugardaginn þar sem eimitt bæði Jehona og Andrea voru á skotskónum.
Við þurfum því á góðum stuðningi að halda, leikurinn hefst kl. 17:30 borgarar á grillinu, og ekkert sem ætti að stoppa fólk í að koma og hjálpa stelpunum í gegnum þessa umferð, við munum öll hvað var gaman í fyrra þegar þær komust í 8 liðað úrsliti í Evrópubikarnum. Koma svo, Áfram Breiðablik
HA