Evrópuævintýri Blikakvenna heldur áfram á miðvikudaginn þegar pólska liðið Czarni Sosnowiec mætir í Kópavoginn í fyrri leik liðanna í 2. umferð UEFA Women’s Europa Cup.
Blikar fóru af miklu öryggi í gegnum fyrstu umferð keppninnar. Rúmenska liðið Csíkszereda fékk heldur betur að kenna á því í fyrri leiknum í Kópavogi þar sem okkar konur unnu 8–1, áður en þær fylgdu því eftir með 1–0 sigri á útivelli. Samanlagt 9–1 og sætið í næstu umferð aldrei í teljandi hættu.
Nú hækkar hins vegar erfiðleikastigið.
Czarni Sosnowiec kemur frá Póllandi og þetta verður allt annað verkefni en í síðustu umferð. Hér er um tveggja leikja einvígi að ræða og því mikilvægt að Blikar nýti heimavöllinn vel áður en haldið verður til Póllands í síðari leikinn þann 30. september.
Blikakonur hafa þegar sýnt í Evrópu í haust hvers þær eru megnugar þegar sóknarleikurinn smellur. Níu mörk í tveimur leikjum gegn Csíkszereda tala sínu máli, en nú þarf að fylgja því eftir gegn sterkari mótherja.
Það hefur líka verið nóg um að vera hjá stelpunum utan vallar síðustu daga. Um helgina var staðfest að kvennalið Breiðabliks verður hluti af EA SPORTS FC 27. Þar með verður Breiðablik fyrsta íslenska félagsliðið sem hægt verður að spila með í leiknum. Leikmenn Blika fá sínar eigin einkunnir og frá 25. september verður hægt að velja grænu treyjuna í einum stærsta fótboltatölvuleik heims.
Það er í raun ansi stór áfangi. Íslensku landsliðin hafa áður verið í leiknum, en aldrei íslenskt félagslið. Að það skuli vera kvennalið Breiðabliks sem ríður á vaðið er enn ein staðfestingin á þeirri stöðu sem kvennaknattspyrnan í félaginu hefur byggt upp í gegnum árin.
En fyrst er það Evrópa.
Leikurinn gegn Czarni Sosnowiec fer fram miðvikudaginn 23. september klukkan 16:00 Síðari leikurinn verður síðan í Sosnowiec miðvikudaginn 30. september.
Evrópuleikir eiga að vera sérstakir og hér er tækifæri til að taka gott skref í átt að næstu umferð. Til þess þarf líka stuðning úr stúkunni.
Nú er því einfalt verkefni hjá okkur hinum: fjölmenna í Kópavoginn, gera heimavöllinn að alvöru heimavelli og hjálpa stelpunum að taka gott veganesti með sér til Póllands.
Áfram Blikar – áfram í Evrópu! ��