Það var heldur betur boðið upp á skemmtun á Eikarvellinum á föstudagskvöldið þegar Blikakonur
tóku á móti FH í lokaumferð Bestu deildarinnar. Íslandsmeistaratitillinn var þegar tryggður en það
kom ekki í veg fyrir að stelpurnar okkar byðu upp á sannkallaða markaveislu. Lokatölur 6–2 og
Íslandsmeistaraskjöldurinn fór á loft í leikslok.
Fyrir leikinn var ljóst að kvöldið yrði hátíðlegt, en líklega áttu fáir von á því sem Hrafnhildur Ása
Halldórsdóttir hafði planað fyrir okkur.
Strax á 12. mínútu kom Ása Blikum yfir eftir góða sendingu frá Þórdísi Elvu Ágústsdóttur og
aðeins sex mínútum síðar var hún búin að tvöfalda forystuna eftir sendingu frá Edith Kristínu
Kristjánsdóttur.
En Ása var rétt að byrja.
Á 37. mínútu fullkomnaði hún þrennuna með glæsilegu skoti utan teigs og fimm mínútum síðar
bætti hún því fjórða við. FH náði að minnka muninn rétt fyrir hlé og staðan var 4–1 þegar liðin
gengu til búningsklefa.
Það er ekki á hverjum degi sem leikmaður skorar fernu í fyrri hálfleik og það gegn liðinu í öðru
sæti deildarinnar!

Í síðari hálfleik bætti Ása fimmta markinu við og tryggði sér þar með Gullskóinn með 19 mörkum á
tímabilinu. Hún skoraði átta þeirra í síðustu þremur leikjunum. Það má segja að hún hafi fundið
markaskóna á nákvæmlega réttum tíma. Hun reyndar skipti um skó eftir 2 mörk en það breytti
engu:)
Bryndís Arna Níelsdóttir bætti síðan við sjötta marki Blika með góðum skalla eftir fyrirgjöf frá Líf
Joostdóttur van Bemmel. FH átti síðasta orðið með fallegu marki en það breytti litlu um
niðurstöðuna.
Eitt af eftirminnilegustu augnablikum kvöldsins kom á 62. mínútu þegar Elísa Viðarsdóttir var tekin
af velli í sínum síðasta leik á ferlinum.
Elísa, sem kom til Blika fyrir tímabilið, fékk verðskuldað standandi lófaklapp frá
stuðningsmönnum. Eftir langan og farsælan feril kvaddi hún fótboltann með
Íslandsmeistaraskjöldinn í höndunum.
Það er ekki slæmur endir á ferlinum og við Blikar þökkum Elísu kærlega fyrir hennar framlag til
þessa frábæra sumars.
Að leik loknum tók svo við það sem allir höfðu beðið eftir. Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Blika,
lyfti Íslandsmeistaraskildinum við mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna.
Þriðji Íslandsmeistaratitillinn í röð og sá 21. í sögu félagsins var staðreynd.
Það er óhætt að segja að þetta hafi verið skemmtileg lok á tímabili sem hefur boðið upp á
ýmislegt. Miklar breytingar á leikmannahópnum, nýtt þjálfarateymi og nokkrir leikir sem reyndu
verulega á taugar stuðningsmanna. En þegar upp er staðið eru Blikakonur Íslandsmeistarar, með
níu stiga forskot á næsta lið.
Ian Jeffs og hans fólk geta verið stolt af sínu fyrsta tímabili við stjórnvölinn.

Og nú er komið að því að þakka fyrir sumarið. Leikmönnum, þjálfurum, starfsfólki og öllum þeim
sem hafa lagt sitt af mörkum til þessa árangurs.
Sérstakar þakkir fá svo stuðningsmennirnir sem fylgt hafa liðinu í gegnum súrt og sætt og mættu
til að fagna með stelpunum á föstudagskvöldið.
Þrír titlar í röð. Sá 21. í hús.
Það er bara nokkuð gott!

HA

S
Breiðablik
6 2
FH
A-deild 2026 ·5.umferð úrslitakeppni ·Kópavogsvöllur ·23.10.2026
48
1
4