Okkar stelpur tóku á móti nágrönnum okkar í Fossvogi, Víkingum í hryssinglegu grámyglulegu veðri.  Áhorfendur voru ekki margir, bæði út af veðrinu og ekki síður að undanúrslitaleikur í HM var á sama tíma, stórfurðulegt að KSÍ setja leik á sama tíma, stór efa að það hefði verið gert karlameginn.

Byrjunarlið Blika var eftirfarandi: Taylor í marki, síðan voru útispilarar þær Elísa, Elín, Olga, Agla María, Katelyn, Ólöf, Hrafnhildur Ása, Edith, Kristín Dís og Líf.

Það voru tvær breytingar gerðar frá síðasta leik, Taylor Kane kemur í markið á kostnað Herdísar og Olga Ingibjörg kemur í stað Sunnu Rúnar. En báðar þessar stelplur eru að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliðinu.

Það var róleg byrjun á leiknum, Víkingur heimtuðu vítaspyrnu  en það var réttilega ekki dæmt. Á 17. mínútu fengum við upplagt tækifæri á að taka forystuna, þegar Agla tekur hornspyrnu og Kristín Dís á skalla í stöngina og síðan er bjargað á línu.

Skömmu síðar skorum við mark, þegar Líf nær að setja boltann í netið en boltinn hafði farið útaf rétt áður en fyrirgjöfin kom. Blikarnir héldu áfram að sækja og fengu nokkur horn og nokkur álitlegar stöður en náðu ekkert að láta reyna á markmanninn.

En þegar um 10 míntur voru eftir af hálfleiknum fengu gestirnir dauðafæri en Taylor sýndi magnaða markvörslu og varði í horn..

Staðan var 0-0 í hálfleik í frekar tilþrifalitum leik og þótt við höfðum haft töluverða yfirburði í leiknum, þá megum við þakka Taylor fyrir að vera ekki 0-1 undir. 

Seinni hálfleikur var frekar tíðindalítill eða alveg þangað til að Víkingur fær stungusendingu inn fyrir vörnina, Taylor gerir aftur gríðarlega vel og nær að loka vel markinu og verja skotið. Við svöruðum svo fyrir okkur, þegar Olla komst ein í gegn en renndi boltanum rétt framhjá.

Það var síðan á 73. mínutu þegar stíflan loksins brast, þegar Edith fékk flotta sendingu frá Líf og Eidth kláraði færið sitt og við komnar með forystuna.  Það liðu síðan rúmlega 2 mínútur þegar við vorum búnar að tvöfalda forystuna, þegar Líf átti frábært skot sem fór í fallegum boga yfir markvörðinn. Aftur liðu 2 mínútur og í þetta sinn þurfti Taylor taka á honum stóra sínum.

Eins tíðindalítill og leikurinn var í fyrri hálfleik, þá var nóg af atvikum í þeim seinni, við tókum okkar þriðja mark á sex mínútum kom þegar Olla skoraði sitt fjórða mark í sumar. Agla María fékk síðan geggjaðan séns að setja fjórða markið. Hún fékk frábæra sendingu frá Eidth, framhjá markmanninum, en Agla María virtist festast í grasinu og fellur við og nær ekki að pota boltanum í tómt markið.

Þegar komið var á 90. mínútu minnkar Víkingur muninn, þegar Bergdís nær frákastinu eftir að Taylor hafi varið frábærlega rétt áður, svekkjandi mark. 

Hrafnhildur Ása gat aukið muninn aftur í 3 mörk þegar hún fékk geggjaða sendingu og með geggjaða móttöku, lagði hann vel fyrir sig, en náði ekki að koma boltanum yfir markmanninn.  En það kom ekki að sök, því Ólöf Margrét gulltryggði sigur okkar kvenna með sínu fyrsta Bestu deildar mark, Ólöf Margrét er eingöngu 14 ára gömul! Til hamingju Ólöf.

En flott svar frá síðasta leik, soldið löng fæðing, en úrslitin góð og fyllilega verðskuldaður. Við erum komnar á toppinn, allavega í sólarhring. Næsti leikur í Bestu deildinni er á móti Valskonum á útilvelli 21. júlí.

Kristinn

S
Breiðablik
4 1
Víkingur
A-deild 2026 ·11.umferð ·Eikarvöllurinn ·15.07.2026
1
3