Blikar hófu úrslitakeppni Bestu deildar kvenna með sannfærandi 4-1 sigri á Grindavík/Njarðvík á Eikarvelli í gærkvöldi. Blikar byrjuðu leikinn frábærlega og voru komnar stöðuna 3-0 þegar gengið var til búningsklefa.

Það tók aðeins tvær mínútur að komast yfir en Aglamaría Albertsdóttir náði að refsa mistökum í öftustu línu Grindavíkur/Njarðvíkur og skoraði fyrsta markið. Aðeins tíu mínútum síðar var staðan orðin 2-0 þegar Kristín Dís Árnadóttir fylgdi eftir skoti Öglumaríu og kom boltanum í netið. Yfirburðir Blika voru miklir í fyrri hálfleik en þriðja markið kom loksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Þá lagði Agla María boltann fyrir Edith Kristínu Kristjánsdóttur sem lét vaða og kom Blikum í 3-0.

Gestirnir fengu gullið tækifæri til að koma sér aftur inn í leikinn snemma í síðari hálfleik þegar dæmd var vítaspyrna, en Herdís varði vel. Blikar svöruðu nánast samstundis hinum megin þegar Þórdís Elva Ágústsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik og gerði stöðuna 4-0. Grindavík/Njarðvík náði að klóra í bakkann skömmu síðar en nær komust þær ekki.

Agla María var maður leiksins hjá Blikum, með mark, stoðsendingu og stóran þátt í öðru markinu. Pressan hjá liðinu í fyrri hálfleik var sömuleiðis virkilega góð og sýndi hvað þetta lið getur gert þegar það mætir af fullum krafti frá fyrstu mínútu.

Þrjú stig í hús og pressan sett yfir á FH. Akkúrat svona á að byrja úrslitakeppnina.

S
Breiðablik
4 1
Grindavík/Njarðvík
A-deild 2026 ·1. umferð úrslitakeppni ·Eikarvöllurinn ·17.09.2026
14
2