Það var mikil spenna í lofti á Kaplakrikavelli þegar Blikakonur komu í heimsókn. Öllu tjaldað til og áhorfaendamet á kvennaleik í Hafnarfirði staðreind, rúmlega 1000 áhorfendur, enda um stórleik að ræða þar sem bæði lið voru fyrir leikinn með 33 stig á toppi deildarinnar, Fh með 2 mörkum betra markahlutfall og voru í í efsta sæti fyrir leikinn.
Þetta var fjórði leikur Blika á 10 dögum og þar af tveir sem fóru í framlengingu í 30 stiga hita á meðan FH hafði haft frekar náðuga daga í undirbúningi fyrir þennan leik. Það er því óhætt að segja að að blundaði smá ótti að þreyta myndi segja til sín í þessum leik hjá okkar konum. En því var svo sannarlega ekki að heilsa. Blikar byrjuðu leikinn af krafti og fengu strax færi á fyrstu mínútu leiksins og það var svo á 9 mínútu sem Agla María átti frábæra fyrirgjöf sem Edith náði að nýta og koma Blikum í 0-1. Frábær byrjun og gott að setja tóninn stra.
Eftir markið róaðist leikurinn aðeins og liðin skiptust á að sækja, Blikar alltaf hættulegri og FH liðið átti í erfiðleikum með að skapa sér færi.
Það var svo á 42 mínútu leiksins sem Hrafnhildur Ása kemst ein innfyrir vörn FH og kemur boltanum í netið með frábærri afgreiðslu undir markmann Hafnfirðinganna og staðna orðin 0-2 og þannig var staðan í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði svo á svipuðum nótum en þó voru FH stelpur ákveðnari en í fyrri hálfleik, án þess þó að skapa sér afgerandi færi.
Á 57 mínútu gera Blikar breytingu þegar Sunna Rún kemur inná fyrir Þórdísi Elvu, og í kjölfarið gerir FH þrefalda skiptingu til að skerpa á sóknarleik sínum. Og á 65 mínútu kemur Úlfa Dís inná í sínum fyrsta leik fyrir Blika.
Næstu mínútur lágu FH nokkuð á okkur Blikum og komust í góðar stöður en vörnin og Taylor í markinu sáu við öllum þeirra tilraunum.
Á 73 mínútu fá Blikar aukaspyrnu nokkuð langt útá velli sem Agla María tekur og setur hann inn á vítateig FH og þar siglir hann í gegnum allan pakkan og í netið, staðan orðin 0-3 og orðið nokkuð ljóst í hvað stefndi.
Blikar náðu svo að sigla þessu nokkuð þæginlega heim og sigruðu þennan toppslag 3-0 og náðu að halda hreinu en þetta var fyrsti leikur sumarsins sem FH skorar ekki mark í.
Blikar fara í því á toppinn og eru 3 stigum á undan FH og eiga 4 mörk á þær í markamun. Það er erfitt að taka einhverjar út í Blikaliðinu, þær voru alltar frábærar bæði í vörn og sókn en þó er í lagi að minnast á Þær Öglu Maríu sem á 2 stoðsendingar og eitt mark og leiddi liðið áfram með geggjuðu fordæmi, og einnig var Karítas algerlega stórkostleg í bakverði þar sem hún át alla sem reyndu að komast þar upp, var stórkostleg allan leikinn. Það var líka frábært að sjá orkustigið í
Blikaliðinu sem eins og í síðasta leik barðist allan leikinn og þegar þetta stuð er á þeim þá eiga fá lið einhver svör.
En mótið er langt í frá búið. Næsti leikur er á útivelli á móti Stjörnunni á fimmtudaginn og hvetjum við alla til að mæta og styðja stelpurnar, við þurfum á stuðningi að halda til að koma okkur í gegnum loka leikina til að tryggja okkur heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni.
-B