Blikakonur tóku á móti Grindavík/Njarðvík á heimavelli í gær og virkuðu sprækar eftir erfitt ferðalag til Kasakstan. Leikurinn byrjaði rólega og voru bæði lið að þreifa fyrir sér. Á 9. mínútu er góð sókn hjá okkar konum þar sem Hrafnhildur Ása kemur með frábæra fyrirgjöf frá hægri á Katelyn Duong sem tekur hnitmiðað skot uppi hægra megin og kemur Blikum yfir með óverjandi skoti og staðan orðin 1-0.
Eftir þetta voru Blikar með öll völd á leiknum, á 16. mínútu átti Sunna Rún fyrirgjöf á Katelyn en Taylor Fox í marki Grindavíkur/Njarðvíkur grípur boltann. Okkar konur sóttu án afláts en gekk illa að koma boltanum í góð færi. Það tóks þó á 24. mínútu þegar Þórdís vinnur boltann á hættulegum stað, kemur honum á Hrafnhildi Ásu sem kemst ein á móti Taylor í markinu en skotið ekki nógu gott og Taylor ver. Á 30. mínútu voru okkar konur aftur í færum, fyrst Þórdís Elva með fast skot fyrir utan teig sem Taylor ver út í teiginn og Líf fylgir á eftir en aftur varði Taylor. Áfram hélt stanslaus sókn okkar kvenna. Karítas, sem var frábær í leiknum, komst upp að endamörkum og á fyrirgjöf á Hrafnhildi Ásu en enn ver Taylor. Taylor var aftur á ferðinni á 35. mínútu þegar Aglamaría kemur með lúmskt skot inn í teig og Taylor ver. Á þessum tímapunkti voru áhorfendur farnir að sjá að þetta yrði einn af þessum leikjum þar sem boltinn vildi alls ekki inn og markvörður andstæðingana að eiga sinn besta leik. Staðan í hálfleik því 1-0.
Seinni hálfleikur byrjaði fjöruglega á 47. mínútu átti Hrafnhildur Ása fínt skot en enn ver Taylor. Grindavík/Njarðvík áttu svo fína sókn á 48. mínútu þar sem kemur fyrirgjöf inn í teig og Elli Coffield átti skalla en boltinn í slá og Blikar heppnar og ná að hreinsa frá. Eftir þetta datt leikurinn niður og voru næstu mínútur mjög rólegar þar sem bæði lið skiptust á að halda boltanum. Á 68. mínútu átti Karítas gott skot en aftur ver Taylor. Á 75. mínútu kemur Edith Kristín inn fyrir Líf og á 81. mínútu kom Bryndís Arna inn fyrir Þórdísi Elvu. Á 83. mínútu vildu heimakonur fá rautt spjald þegar Emma Nichole togaði í hárið á Elísu en Ásbjörn dómari dæmir einungis aukaspyrnu og ekkert spjald á loft. Blikar ekki sammála þessu. Á 85. mínútu á Hrafnhildur Ása gott færi en bolti fer rétt yfir markið. Á 89. mínútu kemur Olga Ingibjörg inn á fyrir Sunnu Rún og leikurinn rúllar sitt skeið. Sigur Blikakvenna staðreynd en hann hefði getað orðið mun stærri og hefði verið gaman að sjá XG Blika sértaklega í fyrri hálfleik.
Næsti leikur okkar er í Hafnarfirði á laugardaginn kemur kl. 17:00 á móti FH, sannkallaður toppslagur þar sem öllu verður tjaldað til hjá FH, leikurinn til styrkar Einstökum börnum og ljóst að það verður fjölmennt af stuðningsmönnum Hafnfirðinga þar. Það er því einstakleg mikilvægt að stuðningsmenn Blika fjölmenni líka þar sem við þurfum svo sannarlega á stuðningi að halda og hvetjum við alla til að mæta á leikinn og hvetja okkar konur áfram. Áfram Breiðablik!
-B