Stelpurnar okkar unnu frábæran 8-1 sigur á Csíkszereda frá Rúmeníu í fyrri leik liðanna í Evrópubikar kvenna í gær. Okkar konur fóru á kostum í fyrri hálfleik og voru yfirburðir liðsins miklir.

Það var strax á 6. mínútu sem Úlfa Dís kom okkar konum yfir eftir fyrirgjöf frá Öglumaríu. Strax var ljóst að áhorfendur ættu skemmtilegan leik í vændum, því okkar konur héldu áfram stanslausri sókn það sem eftir lifði hálfleiksins.

Á 9. mínútu átti Sunna Rún skot sem var varið í horn. Upp úr hornspyrnunni skoraði Úlfa Dís sitt annað mark í leiknum með frábæru skoti upp í samskeytin – geggjað mark!

Okkar konur héldu áfram að herja á mark gestanna og sköpuðu sér fjölda færa. Það skilaði næsta marki á 24. mínútu þegar Sunna Rún skoraði eftir fyrirgjöf frá Edith Kristínu. Aðeins tveimur mínútum síðar, á 26. mínútu, kom fjórða markið þegar Líf skoraði eftir stoðsendingu frá Sunnu Rún.

En fyrri hálfleikurinn var ekki búinn. Á 42. mínútu skoraði Kristín Dís eftir aðra stoðsendingu Sunnu Rúnar og staðan því 5-0 í hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var algjör einstefna okkar kvenna og gestirnir komust varla yfir miðju.

Í hálfleik kom Hrafnhildur Ása inn fyrir Úlfu Dís og áfram hélt sókn okkar kvenna. Á 47. mínútu skoraði Sunna Rún eftir stoðsendingu frá Hrafnhildi Ásu og hún var aftur á ferðinni á 52. mínútu, þá eftir stoðsendingu frá Edith. Þar með var þrennan komin í hús hjá Sunnu, auk þess sem hún hafði lagt upp tvö mörk.

Það var svo Hrafnhildur Ása sem rak endahnútinn á markaveisluna á 54. mínútu og staðan orðin 8-0.

Á 59. mínútu komu Bryndís Arna og Kristín Vala inn fyrir Öglumaríu og Líf og á 69. mínútu komu Þórdís Elva og Hildur Þóra inn fyrir Kristínu Dís og Elísu.

Okkar konur héldu áfram að sækja en á 79. mínútu náðu gestirnir að minnka muninn nánast upp úr þurru. Csilla átti þá skot fyrir utan teig sem fór í varnarmann og breytti um stefnu, þannig að boltinn flaug í boga yfir Herdísi og í markið.

Hrafnhildur Ása fékk síðan nokkur góð tækifæri til að bæta við mörkum undir lokin en boltinn vildi ekki inn. Lokatölur urðu því 8-1 fyrir okkar konum, sem er sannarlega gott veganesti fyrir seinni leik liðanna sem fram fer í Rúmeníu.

Geggjaður leikur hjá okkar konum!

Næsti leikur liðsins verður á laugardag gegn ÍBV kl. 16:00 á Eikarvelli og hvetjum við að sjálfsögðu alla Blika til að mæta og styðja stelpurnar áfram í baráttunni í Bestu deildinni.

 

-B