S
Breiðablik
3 2
Dinamo Minsk
Meistaradeild UEFA 2026-2027 ·Meistaradeild UEFA 2026. Leikur um sæti í undankeppni ·Aktobe Ortalyk Stadion ·07.08.2026
8
7

Eftir svekkjandi tap á móti meisturunum frá Kazakhstan , Aktobe, þá tók við leikur á móti Dinamo Minsk frá Hvíta Rússlandi.  Leikurinn fór fram kl 07:00 að íslenskum tíma en þá var hádegi í Kazakhstan og hitinn um 30 gráður.

Það vakti athygli í byrjunarliðsvalinu að reynsluboltarnir Agla María og Karitas voru á bekknum og ánægjulegt að sjá hina ungu Kristínu Völu fá sæti í byrjunarliðinu í þessum mikilvæga leik.

En leikurinn byrjaði alls ekki vel fyrir okkur Blika því strax á 14 mínútu leiksins náði reynslumesti leikmaður Dinamo Minsk, Anna Pilipenko að koma Hvít rússunum yfir eftir nokkurn vandræðagang hjá okkar varnarmönnum.

En aðeins 2 mínutum síðar vænkaðist hagur Blikar þegar leikmaur Dinamo Minsk ákvað að rífa í hárið á Edith og fékk umsvifalaust rautt spjald.  Héldu nú margir að brautin yrði bein fyrir okkur í framhaldinu, en sú varð heldur betur ekki raunin.  Liðin skiptust á að sækja það sem eftir lifði hálfleiks, Blikar vissulega heldur meira með boltann eftir að þær urðu fleiri en Dinamo Minsk alltaf hættulegar þegar þær nálguðust Blikamarkið.

Í hálfleik gerðu Blikar þrefalda skiptingu þegar Agla María, Karitas og Líf komu inná fyrir þær Kristínu Völu, Hildi Þóru og Edith.  Blikar byrjuðu af krafti og strax á 53 mínútu vorum við búnar að jafna leikinn og það voru varamennirnir sem voru höfundar af því marki því Agla María átti góða hornspyrnu sem Karitas náði að skalla í netið og allt jafnt 1-1.

Blikar miklu betri á vellinum og bjartsýni hjá þeim sem fylgdust með að nú myndum við klára þetta en Dinamo stúlkur voru ekki á þeim buxunum.  Aftur eftir vandræðagang í vörninni hjá okkur þá komust þær í dauðafæri og Anna Pilipenko bætti við sínu öðru marki og staðan orðin 1-2.

Áfram hélt baráttan og á 82 mínútu gerðu Blikar sögulega skiptingu þegar varamarkmaðurinn Taylor Kane kom inná sem útlileikmaður ásamt Dórotheu Ósk. Og Blikar þar með búnar að nota allar sínar skiptingar.

Það var mikill hiti í lofti og þreyta í leikmönnum en einhvernvegin náðu Blikar að finna jöfnunarmarkið þegar 6 mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Agla María náði að pota inn jöfnunarmarki eftir sendingu Dórotheu og ljóst að framlenging blasti við.

Það var svo á 102 mínutu sem Karitas átti frábæra sendingu á Öglu Maríu sem kemur okkur í 3-2  og öll mörk og stoðsendingar Blika koma af bekknum. Stelpurnar náðu svo að sigla þessu heim og tryggja okkur sæti í Evrópubikar UEFA  þar sem leikið er  heima og heiman 26 ágúst og 2 september og það kemur í ljós á þriðjudaginn hver andstæðingur okkar verður og einnig hvort fyrri leikurinn verður á Eikarvellinum eða úti.

HA