Stelpurnar okkar spila við Framstúlkur á Lambahagavellinum á fimmtudaginn næstkomandi, þann 9. Júlí, klukkan 19:15. Okkar konur náðu að tylla sér aftur á toppinn áður en að pásunni kom með góðum sigri 0-3 í Eyjum. Á sama tíma töpuðu Framstúlkur fyrir Stjörnunni á útivelli 3-0 og sitja á botni deildarinnar með 4 stig eftir pásuna.
Félögin hafa einungis leikið þrisvar á móti hvort öðru í efstudeild og hafa okkar konur farið með sigur af hólmi í öll skiptin. Í fyrri umferðinni í ár þurftu okkar konur að sýna mikla þolinmæði til að brjóta niður varnarmúr Fram sem var mjög þéttur í leiknum og gaf ekki eftir fyrr en vel var liðið á síðari hálfleik þegar Líf og Barbára náðu að setja 2 mörk með stuttu millibili og tryggja 2-0 sigur.
Hjá Fram hittum við fyrir nokkra Blika, en þær Hildur María Jónasdóttir, Harpa Helgadóttir og Sara Svanhildur, leika allar með Framliðinu í ár.
Það verður örugglega um hörkuleik að ræða þar sem Framstúlkur ætla svo sannarlega að snúa gengi sínu í sumar við og hvetjum við því alla Blika að fjölmenna á Lambhagavöllinn og hvetja okkar stúlkur áfram okkur veitir svo sannarlega ekki af í þeirri baráttu sem er í gangi um Íslandsmeistaratitilinn í ár.
Áfram Breiðablik!
-B