Það var frekar dræm frammistaða sem okkar stelpur buðu uppá í Kópavoginu á Laugardaginn.  Þrátt fyrir frábært veður og fyrirtaks aðstæður til knattspyrnuiðkunar þá var frekar lítið aðfrétta hjá Blikum.

Stjörnustelpur mættu hins vegar til leiks og komust yfir strax á 7 mínútu leiksins, með góðu marki frá Ingibjörgu Lúcíu.   Blikar stóttu nokkuð stíft eftir markið en náðu í raun ekki að skapa neitt af viti og Stjarnan alltaf hættuleg í skyndisóknum sínum.  En Staðan 0-1 í hálfleik og Blikar nokkuð bjartsýnir á að geta snúið þessu við í síðari hálfleik.

En því var ekki að heilsa því Stjörnustelpur endurtóku leikinn og skoruðu á 7 mínútu síðari hálfleiks og staðan orðin 0-2  og aftur var það Ingibjörg Lúsía sem skoraði,  og 6 mínútum síðar þá skoraði Úlfa Dís þriðja mark Stjörnunar og staðan orðin erfið.

Hrafnhildur Ása náði að minnka muninn í 1-3 strax í kjölfarið og vonir Blika lifnuðu á ný, en allt kom fyrir ekki og Stjarnan silgdi þessum sigri heim. 

Þetta er leikur sem við viljum gleyma sem fyrst nema að því marki sem við getum lært af mistökunum okkar í leiknum.  Úrslit umferðarinnar þýða að við misstum Toppsætið til FH og ljóst að baráttan verður hörð til loka tímabilsins.  

Næsti leikur er á móti ÍBV í eyjum 22 júní og ljóst að þar verður ekkert gefið og okkar leikmenn þurfa að mæta dýrvitlausar í leikinn ef þær ætla að fá eitthvað útur honum

-B