Það verður sannkölluð meistaraveisla á Eikarvellinum á föstudaginn þegar Blikakonur taka á móti FH í lokaumferð Bestu deildarinnar.

Íslandsmeistaratitillinn er kominn í hús, þriðja árið í röð og í 21. sinn í sögu félagsins. Nú er komið að því að lyfta skildinum og fagna almennilega með okkar fólki!

Og það verður ekki bara boðið upp á fótbolta.

Græna stofan opnar klukkan 16:00 og þar geta Blikar komið sér í rétta gírinn fyrir leik. Kjúklingavængir frá Catalínu verða á góðum díl og væntanlega eitthvað kalt með. Að leik loknum verður svo að sjálfsögðu partýstemming í Grænu stofunni.

Leikurinn gegn FH hefst klukkan 18:00 og þótt titillinn sé þegar tryggður er engin ástæða til að gefa gestunum neitt á föstudaginn. Það væri sérstaklega viðeigandi að ljúka þessu frábæra tímabili með sigri áður en Íslandsmeistaraskjöldurinn fer á loft.

En að þessu sinni snýst kvöldið fyrst og fremst um stelpurnar okkar og stuðningsmennina.

Það er ekkert sjálfgefið að vinna Íslandsmeistaratitilinn þrjú ár í röð, jafnvel þótt Blikakonur hafi gert sitt besta til að láta það líta þannig út!

Nú er okkar að mæta, þakka þeim fyrir sumarið og taka þátt í fögnuðinum.

Dagskrá föstudagsins:

16:00 – Græna stofan opnar, kjúklingavængir frá Catalínu á góðum díl.

18:00 – Breiðablik – FH á Eikarvellinum.

Eftir leik – Meistarafögnuður og partýbar í Grænu stofunni.

Tökum fjölskylduna og vinina með, fyllum stúkuna af grænum treyjum og gerum þetta að eftirminnilegu kvöldi.

Það er ekki á hverjum degi sem við verðum Íslandsmeistarar

Sjáumst á Eikarvellinum!

Áfram Breiðablik!

HA