Þrír leikir eftir í titilbaráttunni
Það er komið að næsta kafla í æsispennandi endaspretti Bestu deildar kvenna þegar Blikar taka á móti Þrótti á Eikarvellinum sunnudaginn 4. október klukkan 14:00. Þegar aðeins þrír leikir eru eftir sitja Blikar á toppi deildarinnar með 43 stig, þremur stigum á undan FH. Það
þarf því lítið að fjölyrða um mikilvægi sunnudagsins. Hvert stig skiptir máli en verkefnið er einfalt – halda áfram að safna stigum og halda forystunni á toppnum.
Sterk endurkoma í Eyjum
Blikar koma inn í leikinn eftir gríðarlega mikilvægan 2–1 útisigur á ÍBV í síðustu umferð. Eyjakonur komust yfir í fyrri hálfleik en Blikar svöruðu eftir hlé. Agla María Albertsdóttir jafnaði metin úr vítaspyrnu á 69. mínútu áður en Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði sigurmarkið tíu mínútum síðar. Þrjú stig í hús og toppsætið áfram í höndum Blika. Nú tekur hins vegar við allt annað verkefni gegn Þrótti, liði sem hefur reynst Blikum erfitt í sumar.
Fjórði slagurinn við Þrótt
Liðin þekkja hvort annað vel enda hafa þau þegar mæst þrisvar á tímabilinu. Fyrsti leikurinn var opnunarleikur Bestu deildarinnar í Kópavogi. Þar fóru Blikar vel af stað og unnu 2–0 sigur. Edith Kristín Kristjánsdóttir og Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoruðu mörkin og Agla María Albertsdóttir var með baðar stoðsendingarnar. Þróttarar svöruðu hins vegar í Mjólkurbikarnum í maí. Þar unnu þær 3–2 í Laugardalnum og bundu enda á bikarævintýri Blika. Síðasti deildarleikur liðanna fór síðan fram í september og þar varð niðurstaðan 1–1. Katelyn Duong kom Blikum yfir undir lok fyrri hálfleiks en Þróttarar jöfnuðu eftir hlé. Það er því óhætt að segja að Blikar viti nákvæmlega hvað bíður þeirra á sunnudaginn.