Blikakonur taka á móti Grindavík/Njarðvík á fimmtudaginn kemur klukkan 19:15 á Kópavogsvelli. Okkar konur enduðu efstar í deildinni með einu marki betra markahlutfall en FH konur sem voru með jafnmörg stig. Grindavík/Njarðvík tryggði sig einnig inn í efri hluta úrslitakeppninnar með því að vera með betri markatölu en Fram en bæði lið voru með 22 stig.
Það er ljóst að okkar konur þurfa að halda vel á spilunum í úrslitakeppninni og mæta ákveðnari til leiks en hefur verið í undanförum leikjum í Bestu deildinni. Í síðasta leik gerðu þær jafntefli við Þrótt eftir að hafa tapað tveimur síðustu leikjum þar á undan. Það er alveg morgunljóst að FH konur munu ekkert gefa eftir í keppninni enda ætla þær sér þann stóra í fyrsta skiptið. Það er í höndum okkar kvenna að láta það ekki gerast og því verðar þær að berjast fram á síðustu mínútu í þeim leikjum sem eftir eru.
Grindavík/Njarðvík spilaði um helgi til úrslita í Mjólkurbikarnum og töpuðu þeim leik á móti Þrótti eftir hörku leik. Þær munu mæta tvíefldar til leiks og vilja klárlega enda sitt mót á góðan máta eftir að hafa komist í efri hluta keppnina. Við viljum hvetja alla Blika til að mæta á völlinn og hvetja áfram stelpurnar okkar- þær eiga það skilið- Áfram Breiðablik!
-B