Stelpurnar okkar unnu flottan sigurá útivelli í Rúmeníu í vikunni 0-1. Þar með tryggðu þær sig áfram í Evrópubikarnum þar sem þær munu mæta KKS Czarni Sosnowiec frá Póllandi í næstu umferð.
En næsti leikur og sá síðasti fyrir umspilið í Bestu deildinni verður á móti Þrótti á mánudaginn 7. september klukkan 19:15. Stelpurnar verða hér að sýna sitt rétta andlit og sigra leikinn til að hefja úrslitakeppnina í efsta sæti en slíkt skiptir sköpum vegna heimaleikja réttar.
Okkar stúlkur hófu mótið á heimaleik gegn Þrótti sem vannst 2-0. Þróttara stúlkur sitja í 5 sæti fyrir leikinn með jafnmörg stig og Grindavík/Njarðvík en betri markatölu. Það má því alveg búast við erfiðum leik þar sem Þróttur mun leggja allt í sölurnar til að halda þessu sæti. Okkar konur þurfa að finna stöðugleika og sinn innri kraft til að klára deildina í fyrsta sæti. Allir á völlinn og áfram Breiðablik!
-B