Breiðablik fær Val í heimsókn fjórða leik sinn í Bestu deild kvenna á mánudaginn, 11. maí, klukkan 18.00. Þetta er heimaleikur og að sjálfsögðu skyldusigur á ungu liði Vals. Við þurfum að mæta leiks og klára hann með stæl. Síðustu ár hafa rimmur þessara liða ávallt verið skemmtilegar og spennandi, enda bæði lið með gríðarlega vel mönnuð lið. Þótt Valskonur séu einungis með einn sigur í þremur leikjum, þá má alls ekki vanmeta þær.
Við tökum vel, eins og alltaf, á móti gestunum en tökum samt sérstaklega vel á móti Helgu Rut sem skipti yfir í Val rétt fyrir mót.
Við tókum Víkingana í síðasta leik á meðan Valur tapaði fyrir ÍBV á heimavelli, við erum með fullt hús stiga, búin að skora átta mörk í þremur leikjum, það má alveg sjá í kortunum að mörkunum geti rignt niður í þessum leik, en Valur hefur líka sýnt að þær geta skorað, en engu að síður er þessi leikur frábært tækifæri fyrir okkur að sjá okkar lið taka á móti gömlu erkifjendunum og eiga vonandi glimrandi leik. Mætum til leiks, grípum einn glóðvolgan af grillinu og hvetjum okkar stelpur til (stór)sigurs.
-B