Stelpurnar okkar fara til Vestmannaeyja í næsta leik sínum á mánudaginn 22/06 og hefst leikurinn klukkan 18:00.
ÍBV sem byrjaði mótið af krafti sitja nú í 4 sæti með 14 stig, fjórum stigum minna en okkar stúlkur sem þurftu að láta af hendi toppsætið eftir tap á móti Stjörnunni á heimavelli í síðasta leik. Okkar stúlkur sitja nú í 2 sæti einu stigi á eftir toppliði FH. Þess má einnig geta að ÍBV stúlkur slógu FH stúlkur út í Mjólkurbikarnum í áttaliða úrslitum nú í vikunni eru þær því heitar fyrir leikinn á móti okkar konum.
Liðin hafa mæst 42 sinnum síðan árið 2000 í efstu deild. Þar hafa okkar stúlkur farið með sigur í 27 leikjum, 6 sinnum hefur orðið jafntefli og ÍBV stúlkur hafa unnið 9 sinnum. Við vitum samt að tölfræði segir ekki til um úrslit núna. Okkar konur þurfa að mæta sprækar til leiks því Eyjastúlkur hafa verið virkilega sprækar í sumar og hefur verið gaman að fylgjast með leikjum þeirra.
Við viljum hvetja alla Blika sem eru staddir í Eyjum að mæta á völlinn og hvetja okkar konur eða bara hreinlega gera sér dagsferð til Eyja sem er alltaf góð skemmtun.
Áfram Breiðablik!!
-B