Það er erfitt að finna réttu orðin yfir það sem gerðist á Eikarvellinum í dag. Blikakonur virtust um tíma vera að missa mikilvægt forskot sitt í toppbaráttunni úr höndunum þegar Þróttur leiddi 4-1 í hálfleik. En stórkostlegur seinni hálfleikur, óbilandi trú og þrenna Hrafnhildar Ásu Halldórsdóttur skiluðu ótrúlegum 5-4 sigri.
Þrjú gríðarlega mikilvæg stig í hús og Blikar halda þriggja stiga forskoti á FH þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af Íslandsmotinu.
Martröð í fyrri hálfleik
Það benti fátt til þess í upphafi að dagurinn ætti eftir að enda með Blikasigri.
Þróttarar mættu ákveðnar til leiks og komust yfir strax á 9. mínútu þegar Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði eftir sendingu frá Björgu Gunnlaugsdóttur.
Á 19. mínútu var staðan orðin 0-2. Blikar vildu fá vítaspyrnu en ekkert dæmt og Þróttarar sneru vörn í sókn sem endaði með þvi að Sierra Marie Lelii kom Þrótturum í 0-2
Og aðeins sjö mínútum síðar versnaði staðan enn frekar. Bríet Fjóla fékk boltann fyrir utan teig, lék á varnarmann og smellti boltanum glæsilega í samskeytin. 0-3 og Blikar komnir í veruleg vandræði.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir gaf Blikum líflínu aðeins tveimur mínútum síðar. Katelyn Duong átti góða sendingu á Hrafnhildi sem keyrði í átt að marki og skoraði. Staðan 1-3 og enn nægur tími til stefnu.
En Þróttarar voru ekki hættir. Á 42. mínútu breytti skot Unnar Dóru Bergsdóttur um stefnu af Sierra Lelii og endaði í marki Blika. Staðan orðin 1-4 og þannig var hún þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Þriggja marka munur og FH á sama tíma að vinna sinn leik gegn ÍBV. Og staðan í titilbaráttunni því orðin hnífjöfn.
Allt annað Blikalið eftir hlé
Það tók Blika nokkrar mínútur að ná almennilegum tökum á leiknum eftir hlé en smám saman jókst pressan. Og þegar Blikar fundu annað markið breyttist allt.
Agla María Albertsdóttir tók hornspyrnu á 63. mínútu og Kristín Dís Árnadóttir skilaði boltanum í netið. 2-4.
Blikar gengu á lagið og Þróttarar bókkuðu mikið og ætluðu að verja stöðuna.
Bryndís Arna Níelsdóttir kom inn á sem varamaður og skoraði með sinni fyrstu snertingu. Agla María tók aukaspyrnu inn á teiginn, Karitas Tómasdóttir náði snertingu og Bryndís Arna skoraði 3-4. Allt í einu var leikurinn galopinn.
Ása tók yfir
Þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma kom jöfnunarmarkið.
Agla María átti frábæra sendingu inn fyrir vörn Þróttar þar sem Hrafnhildur Ása slapp í gegn. Markvörður Þróttar kom út á móti en Hrafnhildur fór framhjá henni og renndi boltanum í autt mark. 4-4.
En Blikakonur voru ekki tilbúnar að sætta sig við eitt stig. Þær vildu öll þrjú.
Á 90. mínútu komst Líf Joostsdóttir van Bemmel upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir markið. Þar var Hrafnhildur Ása mætt á fjærstöngina og kláraði vel. 5-4!
Þrennan fullkomnuð, endurkoman fullkomnuð og Eikarvöllurinn trylltist.
Karakter sem getur skilað titlum
Það er hægt að horfa á þennan leik frá tveimur sjónarhornum.
Fyrri hálfleikurinn var langt frá því sem Blikalið í titilbaráttu vill sýna. Hrafnhildur Ása lýsti frammistöðunni sjálf sem „ömurlegri“ eftir leik og sagði liðið hafa þurft að stíga verulega upp eftir hlé.
En hitt sjónarhornið skiptir kannski enn meira máli á þessum tímapunkti tímabilsins. Að vera 1-4 undir í leik sem getur haft gríðarleg áhrif á Íslandsmeistaratitilinn og finna samt leið til þess að vinna 5-4 segir sitt um karakterinn í þessu liði.
Ian Jeffs kallaði einmitt eftir karakter í hálfleik og fékk svo sannarlega svar frá sínum leikmönnum. Þjálfari Þróttar, Jóhann Kristinn Gunnarsson, viðurkenndi sömuleiðis eftir leik að í seinni hálfleik hefði í raun aðeins annað liðið verið að keppa.
Og kannski segir viðbragð Hrafnhildar Ásu eftir leik allt sem segja þarf um trúna innan hópsins. „Við erum alltaf að fara að taka þetta.“
Tveir leikir eftir
Sigurinn þýðir að Breiðablik er áfram á toppi Bestu deildarinnar með 46 stig, þremur stigum meira en FH sem vann ÍBV 5-0 í Kaplakrika.
Nú eru aðeins tveir leikir eftir. Blikar heimsækja Stjörnuna í Garðabæ í næstu umferð áður en Breiðablik og FH mætast í lokaumferðinni í Kópavogi.
Titilbaráttan er því langt frá því að vera búin. En eftir dag eins og þennan er eitt alveg ljóst:
Þetta Blikalið gefst ekki upp.
Breiðablik 5-4 Þróttur
0-1 Bríet Fjóla Bjarnadóttir (9.)
0-2 Sierra Marie Lelii (19.)
0-3 Bríet Fjóla Bjarnadóttir (26.)
1-3 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (28.)
1-4 Sierra Marie Lelii (42.)
2-4 Kristín Dís Árnadóttir (63.)
3-4 Bryndís Arna Níelsdóttir
4-4 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
5-4 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (90.)
HA