Stelpurnar okkar heimsóttu Þróttara á laugardaginn í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Blikastelpur hafa komist í úrslit keppninar 5 ár í röð, en nú þegar sú er staðan þá styttist náttúrulega alltaf í tapleikinn og hann kom um helgina.
Þróttararnir byrjuðu mun betur og það var eins og það væri einhver værukærð yfir Blikum í fyrri hálfleik. Þróttarar komust í 1-0 á 19 mínútu eftir vandræðagang hjá okkar stelpum og þannig var staðan í hálfleik.
Þróttarar byrjuðu svo síðari hálfleikinn á að skora vel studdar af áhorfendum sem fjölmenntu á þennan leik. Við þetta kviknaði aðeins á Blikum og Olla Sigga náði að minka muninn á 60 mínútu og Blikar héldu áfram að sækja á Þróttarana en allt kom fyrir ekki og Þróttarastelpur náðu að setja þriðja markið eftir mistök okkar stelpna og staðan orðin erfið.
Kristín Dís náði að setja inn sárabótamark í uppbótatíma en lengra komust stelpurnar ekki og við dettum því út úr bikarnum snemma þetta árið.
B