Eigum við að ræða Breiðablik?

Íslandsmeistarar 18 sinnum. Bikarmeistarar 12 sinnum.

Eigum við að ræða landsliðið?

Úrslitakeppni Evrópukeppninnar 2009 og 2013 og 2017.

Eigum við að ræða bikarúrslitin 2021?

Breiðablik-Þróttur, Laugardalsvöllur, föstudagur 1. október kl. 19:15

Skína ljósin nógu skært frá í sumar? Nógu skært frá erfiðum útileik sem vannst í byrjun júlí? Nógu skært frá 6-1 sigrinum í Smáranum fyrir tveimur vikum?

Eigum við að ræða sumarið 2021?

Agla María besti leikmaður tímabilsins

Tvær aðrar í liði ársins: Áslaug Munda sem er löngu farin í skóla og Karitas á bekknum, sem vermir varla mikið tréverkið í riðlakeppni Meistarakeppninnar.

Eigum við að ræða aukaþing KSÍ 2021?

Hilton Nordica, laugardaginn 2. október kl. 11:00.

Næsti formaður KSÍ, Vanda Sigurgeirsdóttir, á 109 mótsleiki að baki með Breiðabliki auk þess að starfa sem þjálfari hjá félaginu í mörg ár. 

Eigum við að ræða UEFA Champions League 2021?

Klakksvík Færeyjum - Breiðablik 0:7

Gintra Litháen - Breiðablik 1:8

Osijek Króatíu - Breiðablik 1:1

Breiðablik - Osijek Króatíu 3:0

Skína ljósin nógu skært, stelpur, frá þessum sigrum? Var nógu gaman að spila á móti stelpum í búningum við sem við höfum aldrei séð? Var stuð að koma heim og hafa alla helvítis stúkuna með sér?

Eigum við að ræða þjálfaramál, félagaskiptamál eða ljósaperur í flóðljósum?

Stelpur í fótbolta eiga flestar rosalegum stuðningi að fagna. Sumar mæta mótlæti. Heima hjá sér, í fermingarveislum eða jafnvel í félaginu sínu. Þótt Breiðablik hafi líklega staðið sig klúbba best í að efla konur í boltanum hafa Breiðabliksstelpur mátt mæta allskonar sérkennilegheitum frá því Breiðablik var fundið upp. Árið í ár er ekkert nýtt.

Horfandi á þennan geggjaða árangur vaknar samt í hausnum á mér enn á ný spurningin um samanburð karlanna og kvennanna, og nú í nýju samhengi: Skína ljósin nógu skært?

Skína ljósin í okkur sjálfum nógu skært til að við metum framlagið og mergjaðan árangur þess að verðleikum?

Eiríkur Hjálmarsson