Blikar heimsækja Stjörnuna sunnudaginn 19.okt kl 17 í næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna. Breiðablik er með 46 stig á toppnum, þremur meira en FH, og liðin mætast síðan í lokaumferðinni í Kópavogi.
Það er því mikið undir í Garðabænum. Stjarnan hefur unnið báða deildarleiki liðanna í sumar og Blikar þurfa að gera betur en í þeim leikjum ætli þær að halda forskotinu.
Fyrri leiknum lauk með 3–1 sigri Stjörnunnar í Kópavogi í júní. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir skoraði tvívegis og Úlfa Dís bætti við þriðja markinu áður en Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir minnkaði muninn. Í ágúst vann Stjarnan svo 2–0 á heimavelli. Það hefur því ekki gengið vel gegn Garðbæingum það sem af er sumri. Úlfa Dís gekk svo að sjálfsögðu til liðs við okkur í glugganum og verður spennandi að fylgjast með henni gegn sínum gömlu félögum á sunnudaginn.
Síðasti leikur Blika var hins vegar eftirminnilegur. Við lentum 1–4 undir gegn Þrótti en náðum að vinna 5–4 með sigurmarki Hrafnhildar Ásu á 90. mínútu. Hún skoraði þrennu í leiknum og átti stóran þátt í því að þriggja stiga forskotið á FH hélst.
Það var geggjað að ná þeim sigri, en að fá á sig fjögur mörk á heimavelli gefur líka tilefni til að fara yfir varnarleikinn. VIð getum klárlega ekki byrjað eins á móti Stjörnunni á sunnudaginn.. Blikar hafa þegar þurft að elta í báðum leikjum liðanna í sumar og vilja tæpast lenda í þeirri stöðu aftur.
Stjarnan er í fjórða sæti með 27 stig, þremur á eftir ÍBV. Heimakonur eru því enn í baráttu um þriðja sætið og ætla sér að sækja sigur. Á sama tíma og leikið verður í Garðabæ tekur FH á móti Þrótti.
Það má búast við erfiðum leik, en sigur myndi tryggja Blikum að minnsta kosti þriggja stiga forskot fyrir lokaumferðina. Til þess þarf liðið að ná fram betri leik gegn Stjörnunni en í fyrri viðureignunum tveimur.
Við hvetjum Blika til að fjölmenna í Garðabæinn á sunnudaginn og styðja stelpurnar. Leikurinn hefst klukkan 14:00.
Áfram Blikar!