Það er komið að næsta verkefni hjá Blikastelpum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Á laugardaginn halda þær til Vestmannaeyja þar sem ÍBV bíður á Hásteinsvelli. Flautað verður til leiks klukkan 14:00 og það þarf varla að taka fram hversu mikið er undir.
Blikar hófu efri hlutann á sannfærandi hátt með 4-1 sigri á Grindavík/Njarðvík. Frammistaðan í fyrri hálfleik var sérstaklega góð, liðið pressaði hátt, skapaði sér fullt af færum og var í raun búið að ganga frá leiknum áður en liðin fóru inn í klefa. Breiðablik og FH standa jöfn á toppi deildarinnar með 40 stig eftir 19 leiki en Blikar sitja í efsta sætinu á betri markatölu. Það er því ekkert svigrúm fyrir mistök í þeim leikjum sem eftir eru. Þrjú stig í Eyjum gætu reynst gríðarlega mikilvæg þegar upp verður staðið.
Eyjakonur hafa þegar sýnt hvað þær geta ÍBV situr í þriðja sæti með 30 stig og kemur inn í leikinn eftir fjörugan 4-3 sigur gegn Þrótti á Hásteinsvelli. Eyjakonur lentu undir í þeim leik en svöruðu með þremur mörkum fyrir hálfleik og sýndu að þær eru langt frá því auðveldar heim að sækja. Liðin hafa keppt tvisvar í sumar í fyrri leiknum unnum við öruggan 3-0 sigur í eyjunni en í þeim seinni tóku eyjastelpurnar stigin 3 í Herjólf.
Titilbaráttan komin á fullt
Það jákvæða fyrir Blika er að liðið kemur inn í þennan leik með góðan sigur í deildinni á bakinu. Aglamaría Albertsdóttir var frábær gegn Grindavík/Njarðvík og sóknarleikurinn leit á köflum mjög vel út. Ef stelpunum tekst að mæta með sama krafti og þær gerðu í fyrri hálfleik síðast verður erfitt fyrir hvaða lið sem er að eiga við þær. Stelpunurnar okkar hlutu þann heiður nýlega að verða fyrsta Íslenska félagsliðið til þess að komast í EA FC leikinn sem er gríðarlega vinsæll um allan heim og geðveikt tækifæri fyrir unga iðkendur félagsins til þess að kynnast betur og fá að spila sem stelpurnar okkar. Nú eru leikirnir einfaldlega orðnir þannig að úrslitin skipta öllu máli. Engin stig eru gefins og ekkert lið ætlar að gera Blikum greiða.
Næsta stopp: Vestmannaeyjar. Þrjú stig heim í Kópavog áfram Blikar!
ÍBV – Breiðablik
Hásteinsvöllur
Laugardagur 26. september ⏰ 14:00
KBH