Það fer fram sannkallaður stórleikur ársins á morgun laugardag kl. 17:00 í Kaplakrika í Hafnarfirði þar sem okkar stúlkur fara í heimsókn og mæta toppliði FH. Leikir þessara liða undan farin ár hafa verið mjög spennandi og skemmtilegir enda liðin búin að vera að berjast um toppsætið í allt sumar. 

FH er í toppsætinu sem stendur en liðin eru jöfn að stigum en FH stúlkur með 2 mörkum betri markatölu. Það gefur því augaleið að þetta verður æsispennandi leikur og okkar konur þurfa á öllum stuðningi að halda. 

Blikakonur þurftu að sætta sig við tap á móti FH í fyrri umferð Bestu deildarinnar á heimavelli í júní 2-3 og hafa því harma að hefna ásamt því að vilja að sjálfsögðu endurheimta toppsætið.  Það verður gaman að sjá hvort nýjasti leikmaður okkar liðs hún Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir sem kom til okkar á loka degi gluggans frá Stjörnuni muni fá tækifæri til að spreyta sig á móti FH en hún er uppalin þar en færði sig til Stjörnunnar 2021. Úlfa Dís hefur spilað 152 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 47 mörk. Við Blikar bjóðum hana velkomna í hópinn. 

En eins og áður sagði þá þurfa stelpurnar á öllum þeim stuðningi að halda sem þær geta fengið enda um stórleik að ræða og þær eiga það svo sannarlega skilið. ALLIR Á VÖLLINN!! Áfram Breiðablik!!

-B