Þá er komið að þriðja leik okkar Blika í Bestu deild kvenna þetta árið. Þetta er fyrsti útileikurinn og er stefnan sett í Víkina þar sem við mætum Víkingsstelpum sem spáð er góðu gengi í sumar.

Víkingar eru með 3 stig, unnu Stjörnuna í fyrstu umferðinni en töpuðu síðan fyrir ÍBV í eyjum í annarri umferð í æsispennandi leik, þar sem Víkingar náðu tveggja marka forystu en Eyjastúlkur náðu að jafna, Víkingar misstu mann af velli og ÍBV nýtti sér það og náðu inn sigurmarki undir lok leiks.

Blikar hafa byrjað vel í ár og unnið báða leikina sína og eru með markatölun 4-0 og vonandi heldur það áfram.  Það er þó ljóst að Víkingar ætla sér stóra hluti í sumar og þessi leikur verður án vafa stál í stál.

Það eru nokkrir Blikar í Víkingsliðinu, Bergþóra Sól Ásmundsdóttir, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Birta  Birgisdóttir og Helena Ósk Hálfdánardóttir eru allar að spila í röndóttu þetta árið og verður spennandi að mæta þeim í þessum leik.

Í fyrra léku liðin 3 leiki í Bestu deildinni sem Blikar unnu en leikir milli þessara liða eru alla jafna mjög jafnir og skemmtilegir og hvetjum við áhorfendur að flykkjast á völlinn og hvetja okkar konur til sigurs. Það er mikið aukning í aðsókn á leiki í Bestu deild kvenna og við höfum fundið það á leikjunum okkar að útiliðin eru að mæta vel og styðja sitt fólk.  Nú er komið að okkur að fylgja stelpunum á útivöll og sýna stuðing í verki.

-B