BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Sambandsdeild UEFA 2021/2022: Breiðablik - Racing Union fimmtudag 15. júlí kl.19:00!

14.07.2021 image

Breiðablik mætir Racing FC Union Lëtzebuerg á Kópavogselli á fimmtudaginn í síðari leik liðanna í undankeppni sambandsdeildar UEFA 2021/2022 (Europe Conference League).

Okkar menn unnu mjög góðan sigur í fyrri leiknum í Lúxemborg í síðustu viku.

Nánar um þann leik hér: 

Leikurinn við Racing FC Union Lëtzebuerg verður 16. Evrópuleikur Breiðabliks frá upphafi og annar innbyrðis leikur liðanna. Leikirnir 15 til þessa, allir á árunum 2010-2021, voru gegn 9 mismunandi liðum í 9 löndum. Fyrsti Evrópuleikur Blikaliðsins var gegn Motherwell í Skotlandi árið 2010. Önnur lið sem Blikaliðið hefur mætt í Evrópukeppnum eru Rosenborg (2011 og 2020**), Vaduz (2019), Jelgava (2016), Aktobe (2013), Sturm Graz (2013), Santa Coloma (2013) og nú Racing Union FC (2021). **í fyrra (2020) var undankeppnin bara einföld umferð vegn Covid-19.

Árangur Breiðabliks í Evrópukeppninni árið 2013 var einstakur. Liðið vann 3 leiki af 6, gerði 3 jafntefli, en tapaði gegn Aktobe 1:0 í Kasakstan. Og ef frá eru talin töp gegn Motherwell árið 2010 þá hafa Blikamenn knúið fram sigur eða jafntefli í heimaleikjum þau ár sem keppnin var með hefðbundnu sniði.

Í 15 evrópuleikjum 2010-2021 hefur Blikaliðið unnið 5 leiki, gert 4 jafntefli og tapað 6 leikjum. 

Sigurleikir okkar manna í Evrópukeppnum til þessa eru: 

Dagskrá

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á fimmtudag 15. júli kl.19:00!

Miðasala er hafin á tix.is Miðaverð er sem hér segir: Fullorðnir 2.000kr, VIP 5.000kr, Börn fædd 2005-2014 200kr, börn fædd 2015 og yngri frítt. Innifalið í VIP miða er miði á leikinn og veitingar í Glersal, bæði áfengir og óáfengir drykkir. Ath! Blikaklúbbs-og árskort gilda ekki á leikinn.

Blikaborgararnir verða á sínum stað í sjoppunni

Ekki er vitað hvort sjónvarpað verður frá leiknum, en sagt verður frá gangi mála í leiknum á samfélagsmiðlum okkar. Og UEFA er að venju með beina textalýsingu frá leiknum. Meira>

Leiknum verður streymt í gegnum Spiideo kerfi knattspyrnudeildar Breiðabliks gegn €10 greiðslu. Aðgangur hér

Áfram Blikar, alltaf, alls staðar!

image

Smella á mynd. Miðasla er á Tix.is

Til baka