BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Vilhjálmur Kári tekur við Blikum - Öflugt teymi

04.02.2021 image

Vilhjálmur Kári Haraldsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu þar sem hann mun fara fyrir öflugu starfsteymi. Hann tekur við starfinu af Þorsteini Halldórssyni sem ráðinn var landsliðsþjálfari kvenna á dögunum.

Vilhjálmur verður með öflugt starfslið sér við hlið hjá Íslandsmeisturunum þar sem Ólafur Pétursson er aðstoðar- og markmannsþjálfari, Aron Már Björnsson styrktarþjálfari og Úlfar Hinriksson tæknilegur ráðgjafi. Þeir hafa allir verið í teyminu undanfarin ár.

Þá hefur Kristrún Lilja Daðadóttir verið ráðin þjálfari kvennaliðs Augnabliks og verður Vilhjálmur með henni í teyminu, sem styrkir enn frekar tengslin í yngri flokka starfið innan félagsins. Kristrún er Blikum að góðu kunn enda spilaði hún 225 leiki fyrir félagið og skoraði 113 mörk á árunum 1986 til 2002. Kristrún hefur þjálfað í yfir 20 ár bæði í yngri flokkum og í meistaraflokki hjá Breiðablik, Þrótti og KR. Auk þess hefur hún þjálfað U17 ára landslið Íslands.

Vilhjálmur Kári hefur 25 ára reynslu af þjálfun karla og kvenna, bæði hjá FH og Breiðabliki. Þá hefur hann einnig starfað fyrir Knattspyrnusamband Íslands sem leiðbeinandi auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari U17 ára landsliðs kvenna. Vilhjálmur er öllum hnútum kunnugur hjá Breiðabliki, en hann þjálfaði síðast kvennalið Augnabliks. Hann hefur starfað hjá knattspyrnudeildinni síðastliðin tvö ár sem annar af yfirþjálfurum barna- og unglingaráðs með sérstaka áherslu á starfsþróunar- og þjónustumál deildarinnar. Vilhjálmur spilaði sjálfur 69 leiki fyrir Blika á árunum 1993 til 1998.

Breiðablik lýsir yfir mikilli ánægju að fá Vilhjálm til frekari starfa fyrir félagið. Það undirstrikar það sterka og faglega starf sem fram fer innan knattspyrnudeildarinnar og þann mikla auð sem til staðar er af þjálfurum og starfsfólki. Breiðablik leggur mikla áherslu á þjálfun og uppeldi yngri leikmanna, gefa þeim tækifæri og traust til að vaxa og ná árangri. Það að Vilhjálmur taki við Íslandsmeistaraliði Breiðabliks og heldur tengslum við Augnablik styður vel við þá stefnu, samhliða því að Blikar stefna alltaf að því að halda sínum sessi í fremstu röð á Íslandi.

Knattspyrnudeild Breiðabliks býður Vilhjálm og hans teymi velkomið til áframhaldandi starfa!

image

Til baka