Olivia Chance í Breiðablik
19.07.2016Breiðablik hefur samið við nýsjálenska leikmanninn Oliviu Chance um að leika með liðinu út leiktíðina. Olivia hefur undanfarið spilað með South Florida Bulls í Bandaríska háskólaboltanum við góðan orðstý. Í heimalandinu spilaði hún fyrir Claudelands Rovers, en hún á einnig fjölda landsleikja með unglingaliðum Nýja Sjálands og A-landsliði.
Olivia hefur æft með Blikum frá því í byrjun júlí og er lögleg með liðinu í stórleiknum á Kópavogsvelli í kvöld gegn Val.
Í júli hverfa nokkrir lykilmenn Blika til náms í Bandaríkjunum og er Olivia því kærkomin viðbót í hópinn fyrir átökin sem framundan eru.
Bjóðum Oliviu hjartanlega velkomna í Kópavoginn