Evrópukvöld á Kópavogsvelli

Enn einn stórleikur í karlaliðs Breiðabliks í Evrópukeppni UEFA þegar við fáum Zrinjski í heimsókn í síðari umspilsleik liðanna í Evrópudeildinni 2025/26.

Flautað verður til leiks kl.17:30. Miðasala á leikinn er á Stubb.

Ef frá er talið umspils-einvígið við FC Struga um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA 2023/24, er leikurinn við Zrinjski á fimmtudaginn mikilvægasti leikur karlaliðs Breiðabliks í Evrópukeppni frá upphafi. 

Sigri okkar menn einvígið gegn Zrinjski tryggir það Breiðabliki þátttöku í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025/26 – og það óháð niðurstöðu í einvígi Breiðabliks og Utrecht frá Hollandi um sæti í deildarkeppni Evrópudeildar UEFA 2025/26, en það verkefni bíður okkar ef sigur vinnst í leiknum gegn Zrinjski. Leikdagar eru 21. & 28. ágúst. Utrecht á reyndar eftir að spila síðari leikinn í einvíginu gegn Servette en fyrri leikur liðanna fór 3:1 fyrir Utrecht á útivelli í Sviss.

Tapi Blikar leiknum gegn Zrinjski á fimmtudaginn bíður Breiðabliki umspilsleikur við Milsami Orhei frá Moldóvu eða San Marínó um sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar UEFA 2025-26. Fyrri leikur liðanna fór 3:2 fyrir Milsami, í Moldavíu. Leikdagar eru: 21. & 28. ágúst.

Fyrri leikurinn gegn Zrinjski

Sjá pisil: Mikilvægt í Mostar!

J
Zrinjski
1 1
Breiðablik
Evrópukeppni Undankeppni - þriðja umferð - fyrri leikur Stadium HŠK Zrinjski 07.08.2025
11

Evrópusaga Breiðabliks

Karlalið Breiðabliks hefur spilað 52 Evrópuleiki frá 2010 til 2025 og mætt yfir 30 mismunandi liðum frá Evrópu. Þeir hafa tekið þátt í öllum helstu Evrópukeppnum UEFA keppnum: Meistaradeild, Evrópudeild og Sambandsdeild.

Fyrsti Evrópuleikur liðsins var gegn Motherwell í Skotlandi 15. júlí 2010. Síðan þá hefur Breiðablik tekið þátt í Evrópukeppnum í 11 ár af 16 mögulegum - þar af 7 ár í röð. 

Leikurinn við Zrinjski á fimmtudaginn verður 53. Evrópuleikur karlaliðs Breiðabliks frá upphafi.

Þátttaka í Evrópumótum:

- Meistaradeild: 2025, 2023, 2011.

- Evrópudeild: 2025, 2023, 2020, 2019, 2016, 2013, 2010.

- Sambandsdeild: 2024, 2023, 2022, 2021.

Andstæðingar Blika í Evrópukeppnum frá upphafi:

52 leikir við lið frá 27 löndum. 
52 leikir við lið frá 27 löndum. 

EvrópuBlikar

Þrír leikmenn í núverandi leikmannahópi tóku þátt í fyrsta Evrópuleik karlaliðs Breiðabliks fyrir 15 árum. Þetta eru leikmennirnir Andri Rafn Yeoman, Kristinn Steindórsson og Kristinn Jónsson.

Höskuldur Gunnlaugsson hefur verið duglegar að skora mörk í Evrópuleikjum, er með 11 mök, en markahrókurinn Kristinn Steindórsson var fyrstur núverandi leikmanna að skora mark fyrir blikaliðið í Evrópukeppni þegar hann skoraði seinna markið í 2:0 sigri á Rosenborg í undankeppni Meistaradeildarinnar á Kópavogsvelli 20. júlí 2011. 

HŠK Zrinjski

Um andstæðinginn

HŠK Zrinjski er atvinnuknattspyrnufélag með aðsetur í Mostar í Bosníu-Hersegóvínu. Félagið leikur í úrvalsdeildinni þar í landi og hefur verið eitt af bestu liðum landsins enda unnið marga meistaratitla undanfarin ár.

Félagið spilar heimaleiki sína á Stadium of HŠK Zrinjski. Stuðningsmannaklúbbur  Zrinjski heitir Ultras Mostar og var stofnaður árið 1994.

Félagið var stofnað árið 1905 og er elsta knattspyrnufélagið í Bosníu-Hersegóvínu. Eftir seinni heimsstyrjöldina voru öll félög sem höfðu tekið þátt í króatísku deildinni á stríðstímum bönnuð í Júgóslavíu, Zrinjski var einn af þeim. Bannið stóð frá 1945 til 1992.

Eftir sjálfstæði Bosníu-Hersegóvínu voru gerðar umbætur á félaginu. Zrinjski Mostar lék í 1. deildinni til ársins 2000. Eftir það lék liðið í úrvalsdeildinni og vann sinn fyrsta titil þar árið 2005.

Frægasti leikmaður sem hefur spilað í Zrinjski treyju er án nokkurs vafa króatíski miðjumaðurinn Luka Modrić. Hann skrifaði undir sinn fyrsta samning 18 ára gamall, hjá Dinamo Zagreb, en eyddi fyrsta tímabili sínu á láni hjá Zrinjski. Þrátt fyrir ungan aldur spilaði hann 22 deildarleiki tímabilið 2003-04, skoraði átta mörk og sýndi að hann ætti bjarta framtíð fyrir sér.

Árangur Zrinjski í Evrópukeppnum

Liðið tók fyrst þátt í Evrópukeppni árið 2000 í UEFA Intertoto Cup. Leikir liðsins í Evrópukeppnum síðan eru:

Dagskrá

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.17:30 á fimmtudaginn. Leikurinn verður sýndur á Sýn Sport.

Kópacabana hitar upp á Mossley frá kl.14:00!

Brasserie Kársnes vagninn og Bæjarin Bestu á svæðinu.

Blikaborgarar á grillinu og Græna stofan frá kl.16:30!

Dómarar eru frá Grikklandi. Aðaldómari er Anastasios Papapetrou. Aðstoðardómarar eru: Tryfon Petropoulos og Iordanis AptosoglouFjórði dómari: Christos Vergetis. Myndbandsherbergið: Athanasios Tzilos og Spyridon Zampalas,

Bein textalýsing UEFA

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ