Toppliðin Breiðablik og Vestri mætast í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni KSÍ á Kópavogsvelli, fimmtudaginn 15. maí kl.19:30! 

Bæjarins Bestu á svæðinu, Blikasjoppan og Græna stofan opna kl 18.00! Minnum á að árskort gilda ekki á bikarleiki.

Miðasala á leikinn á fimmtudagskvöld er á Stubb 

Sjónvarpið sýnir leikinn á RÚV 2. Útsending hefst kl.19:20!

Sagan & Tölfræði

Íþróttafélagið Vestri er ungt félag - var stofanð 16. janúar 2016 við sameiningu íþróttafélaganna BÍ88, KFÍ, Skellur og Sundfélagið Vestri, á Ísafirði. En upphaf Vestra má rekja til ársins 1986 þegar BÍ er stofnað. Þegar ÍBI er lagt niður árið 1987, og félagið fært undir Héraðssamband Vestur-Ísfirðinga, færðust flestir leikmenn ÍBÍ yfir til BÍ sem þá breytir nafni félagsins í BÍ 88 fyrir keppnistímabilið 1988. Átján árum síðar (2006) breytist nafn félagsins í BÍ/Bolungarvík og keppir undir því nafni þar til fjölgreinafélagið Vestri er stofnað árið 2016.

Bikarleikurinn á fimmtudaginn verður önnur viðureign liðanna á árinu. Í lok apríl gerði Blikaliðið góða ferð til Ísafjarðar í 4. umf Bestu deildarinnar:

S
Vestri
0 1
Breiðablik
A-deild 4. umferð Kerecisvöllurinn 27.04.2025
1
9

Bikarleikir

Gagnagrunnurinn sýnir 2 viðureignir Breiðabliks og Vestra í Mjólkurbikarnum - fyrst árið 2011 þegar liðin mættust í 16-liða úrslitum Valitor-bikarsins á Torfnesvelli. Heimaliðið, þá BÍ /Bolungarvík, sló okkar menn út:

T
Vestri
4 1
Breiðablik
Bikarkeppni KSÍ 16-liða úrslit Skeiðsvöllur 23.06.2011
1

Aftur mætast liðin í Mjólkurbikarnum árið eftir en þá á Kópavogsvelli í leik sem Blikar vinna öruggan sigur:

S
Breiðablik
5 0
Vestri
Bikarkeppni KSÍ 32-liða úrslit Kópavogsvöllur 08.06.2012
6
3

Bæjarins Bestu á svæðinu, Blikasjoppan og Græna stofan opna kl 18.00! Minnum á að árskort gilda ekki á bikarleiki.

Miðasala á leikinn á fimmtudagskvöld er á Stubb 

Sjónvarpið sýnir leikinn á RÚV 2. Útsending hefst kl.19:20!

Áfram Breiðablik!