Blikar.is hefur verið uppfærður í nýtt útlit. Það eldra var komið nokkuð til ára sinna en vefurinn var opnaður í því útliti árið 2012. Nýja útlitið er skalanlegt og verður vefurinn því aðgengilegri í símum og spjaldtölvum en áður. Grunnurinn er sá sami og áður en hresst hefur verið upp á framsetningu á gögnum.
Hér að ofan má sjá nýja forsíðu. Ásamt fréttum og upplýsingum um næstu leiki eru helstu tölfræðiupplýsingum varpað fram af handahófi.
Hér fyrir neðan má kynna sér helstu breytingar.
Nú er auðveldara að skoða leikmenn, og aðrar upplýsingar, eftir árum. Valmynd við hliðina á fyrirsögn kemur notanda á milli leikmanna-, mynda-, myndbanda-, leikja- og blaðasíðna fyrir valið ár. Hægt er að raða leikmönnum eftir samtals leikjum eða ákveðnum mótum. Sem fyrr er hægt að skoða alla leikmenn frá upphafi eða samtals leiki núverandi leikmanna - og raða eftir hentisemi.
Það er áhugavert að renna yfir mótherja Breiðabliks í gegnum tíðina. Í gagnagrunni blikar.is er hver einasti leikur og hægt að flokka þá eftir árum, mótum og heima eða útileikjum og fá samanlagðan árangur í hverju mengi fyrir sig.
Vefurinn er skalanlegur í fyrsta sinn og þannig mun aðgengilegri í símum og minni tækjum.
Leikjasíðurnar eru núna flokkaðar eftir mótum og hægt er að smella á leik til að sjá allar myndir, myndbönd og efni honum tengt.
Ein stærsta breytingin er á leikmannasíðunum. Það er meiri aðgreining á milli móta og landsleikjum er blandað inn í aðaltölurnar. Númer leikmanns er notað sem skraut undir nafni.
*Blikar.is fyrir kvennaliðið mun fá sömu yfirhalningu á næstu dögum. Hann er aðgengilegur á www.blikar.is/kvk
Gylfi Steinn Gunnarsson