Það er þessi liðsheild!
02.06.2025


Í kvöld léku Blikar við fjandvini sína úr Smáíbúðahverfinu í 10.umferð Bestu deildarinnar og var það fyrsta viðureign liðanna frá því á október kvöldinu sællar minningar þegar Blikar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn 2024. Sú minning eldist vel.
Undirritaður var mættur snemma á völlinn til að tryggja sér gott sæti, enda von á fjölmenni. Aðstæður allar hinar bestu 9 stiga hiti, hægviðri, sólar- og úrkomulaust.
Menn voru misbrattir í spádómum. Síðustu leikir okkar manna ekki verið til útflutnings, svo ekki sé nú dýpra í árina tekið. En það móaði í vonina samt sem áður. Bjössi var mættur alla leið úr Ólafsvík og hann var brattur; ,,Þetta verður flottur leikur, andsk….. hafi það geti versnað frá leiknum gegn ÍA“. Og þess vegna mætir fólk eins og Bjössi á völlinn, með von, sem raunar stappar nærri bjargfastri sannfæringu, um að framundan sé betri tíð með blóm í haga.
Byrjunarlið okkar manna var á þessa leið og talsvert breytt frá síðasta leik.
Arnór Gauti í leikbanni, Ásgeir Helgi meiddur, Kristófer, Viktor Elmar og Óli Valur settust á bekkinn.
Inn komu Höskuldur, Andri, Ágúst Orri, Aron og Anton Logi.
Blikar hófu leikinn og undirritaður er efins um að nokkru sinni í samanlagðri 50 ára sögu Kópavogsvallar hafi heimamenn byrjað leik á líkan hátt og nú. Tobias var einn á miðjunni og gerði sér lítið fyrir og dúndraði boltanum rakleiðis aftur fyrir endamörk gestanna í upphafsspyrnunni. Einhver ó-Breiðablikslegasta byrjun sem um getur, en skilaboðin voru nokkuð skýr. Blikar ætluðu að pressa hátt.
(7.juní n.k. eru 50 ár frá vígslu Kópavogsvallar)
Og okkar menn voru ekki með neitt hálfkák og pressuðu gestina á eigin vallarhelmingi og það skilaði strax feilsendingum og brasi hjá gestunum en okkar menn náðu þó ekki að gera sér mat úr þessu svo úr yrði mark. Þetta lagðist samt vel í áhorfendur sem tóku vel við sér. Nú var gamla stúkan að fyllast af aðkomufólki en Blikar sýndu mikla gestrisni að hleypa hluta gestanna inn í aðalstúkuna. Sennilega ekki átt pallettur. Áfram hélt leikurinn og 8. mínútu náðu gestirnir loks að koma liði sínu yfir miðju með boltann og úr varð færi sem Anton gerði vel að redda fyrir rest. Þar munaði mjóu. Okkar menn í smá brasi næstu mínútur og Anton Logi krækti sér í spjald fyrir glímutök. Anton nú í miðverðinum með Viktori. En svo gerðust hlutirnir nokkuð hratt. Fyrst fékk Viktor Karl gott færi eftir laglegan undirbúning Ágústar og Tobíasar en markvörðurinn náði að loka á hann. Mínútu síðar hirti Valgeir boltann eftir útspark gestanna og var snöggur að koma honum á Vitor Karl sem náði að snúa og leggja boltann inn í teig á Tobías sem lék á varnarmann og smellti einum föstum með grasinu í netið. 1-0 fyrir Blika og heimamenn fögnuðu vel.

Í-Slands-Meistarar, Í-Slands-Meistarar, sungu glaðbeittir Blikar í stúkunni undir stjórn Jökulsins. Þetta þótti sumum nokkuð brattur „banter“ eftir rúmleg korters leik.
Skömmu síðar voru gestirnir við það að komast í dauðafæri eftir mistök okkar manna en Viktor Örn kom á fleygiferð og náði að koma í veg fyrir að Víkingar næðu skoti á markið. Snaggaralega gert. Skömmu síðar var Kristinn nærri að bæta við öðru marki Blika eftir undirbúning Höskuldar en skotið sveif hárfínt fram hjá samskeytunum fjær. Þetta mundi hafa verið flott, en eins og glöggir lesendur muna eftir síðasta leikpistil er knattspyrna ekki spiluð í þáskildagatíð.
Næst var það helst tíðinda að fyrirliði Víkinga slapp með tiltal í stað guls spjalds eftir ítrekuð brot á Ágústi Orra sem lék hann grátt á köflum. En sá var ekki lengi í Paradís því áður en varði voru Blikar búnir að setja annað mark á hann og hans menn. Viktor Karl átti góða fyrirgjöf eftir hornspyrnu, sem Tobías lagði snyrtileg fyrir Viktor Örn sem lúrði eins og gammur í teignum og skilaði boltanum í netið. Frábært mark og aðdragandinn alveg til fyrirmyndar. 2-0 og nú var sungið og trallað í stúkunni.

Blikar létu nú kné fylgja kviði í orðsins fyllstu merkingu og stoppuðu allar tilraunir gestanna til að rétta sinn hlut eða ná takti yfirleitt og brúkuðu þau meðul sem til þess dugðu. Skömmu síðar gall við flauta og héldu einhverjir að kominn væri hálfleikur en skv. afstæðiskenningunni gat það eiginleg ekki staðist, og ljósið fer sannanleg hraðar en hljóðið. Pælið í því.
Minnstu munaði reyndar að Blikar settu þarna 3ja markið, því Víkingar hægðu á sér, og hefði það verið maklegt því oss virtist hljóðið koma frá gömlu stúkunni þar sem gestirnir höfðu komið sér fyrir. En þetta er forkastanlegt hver sem í hlut átti og ber að taka hart á slíku. Bárust enda frá vallarþul harðorð skilaboð eitthvað á þessa leið; Eftir einn ei flauti neinn – ella hafi verra af!
Skömmu síðar hljómaði svo rétta flautan til marks um leikhlé og gengu heimamenn hnakkakerrtir til búningsklefa en Blikaklúbbsmeðlimir röltu yfir í Smárann í hálfleikskaffið og gæddu sér þar á dágóðu kaffi og meðlæti. Fín frammistaða hjá okkar mönnum var samdóma álit. Vonandi bæta menn í og við.
Skyldi nokkuð koma þreföld skipting hjá Blikum eins og gegn Fram & KR?
Blikar hófu seinni hálfleik af krafti og Ágúst kom sér í álitlegt færi og náði skotinu en Víkingur tæklaði hann gróflega um leið og enn ein furðu ákvörðunin hjá dómaranum að láta þetta átölulaust. Skömmu síðar komst Aron í gott færi hægra megin en skot hans sveigði framhjá stönginni, þarna hefði vinstri fótur sennilega gefið möguleika á hagstæðari niðurstöðu. En svo kom 3ja mark okkar manna og það var af dýrari gerðinni. Hár bolti og langur fram á vallarhelming Víkinga og þar voru Tobias og stærsti maður Víkinga, Vatnahamar, að kljást um boltann. Tobias rétti út hendur og sannarlega snerti en ýtti ekki á bak tröllsins sem hrundi eins og skotinn á staðnum. Tobías tók boltann og kom honum á Ágúst sem dansaði með hann á milli Víkinga áður en hann kom honum aftur á Tobias sem lyfti honum snyrtilega yfir markvörð gestanna. Vatnahamar stálheppinn að sleppa við spjaldið fyrr leikaraskapinn. Blikar komnir í 3-0, áhorfendur kampakátir og Jökullinn bætti í sönginn.

Gestirnir skelltu í tvöfalda skiptingu á 65.mínútu. Spurning hvort Blikar væru nokkuð að spá í þrefalda? Sennilega ekki.
Skömmu síðar lá Viktor Örn óvígur eftir olnbogaskot/hendi í andlit en Víkingurinn slapp með gult. Viktor krækti sér svo í gult sjálfur þegar hann stöðvaði leikmann gestanna sem flýtti sér um of í sókn, að mati okkar manns sem var kannski komin helst til framarlega. Næstu mínúturnar gekk þetta sitt á hvað og veitti ýmsum betur. Tobias reyndi hjólhestaspyrnu eftir horn án árangurs og svo kom fyrsta skipting Blikar þegar Kristófer kom inn fyrir Ágúst. Þá hefði fyrirliði Víkinga orðið feginn hefði hann ekki sjálfur fyrir löngu verið kominn út af. Ágúst með flottan leik í kvöld. Víkingar reyndu allt hvað af tók að koma sér inn í leikinn en það gekk lítið þó litlu munaði þegar þeir áttu skalla af stuttu færi sem Anton Ari varði frábærlega.
Daniel Obbekjær kom nú inn fyrir Kristinn, sem átti flottan leik og hans besta í sumar. Blikar virtust vera að sigla þessu örugglega að landi þegar kom skyndileg babb í bátinn á 89. mínútu. Undirrituðum yfirsást aðdragandinn en Antoni Ara mun hafa orðið á í messunni í útsparki með þeim afleiðingum að gestirnir náðu boltanum við vítateig okkar og komust í gegn og skoruðu. Slysalegt.
Nú sáust reynsluboltar í stúkunni vera við það að fara að naga neglurnar aftur og seilast í sprengitöflurnar og ekki minnkaði spennan þegar 5 mínútum var bætt við venjulegan leiktíma. Gabríel Snær kom inn fyrir Tobias, sem átti stórbrotinn leik í kvöld og Blikar gerðu vel í að láta tímann vinna með sér og gáfu ekkert eftir. Ekki var allt búið enn því í blálokin varð skrautlegt atvik nálegt miðju þar sem markvörður gestanna bókstaflega straujaði Viktor Karl niður nálægt boganum, þegar Viktor var í þann mund að komast í skotfæri á tómt markið. Gult spjald á markvörðinn sennilega rétt niðurstaða, þrátt fyrir að Blikar heimtuðu rautt. Skömmu síðar flautaði dómarinn til leiksloka og Blikar fögnuðu lengi og innlega kærkomnum og verðskulduðum sigri.
Það var liðsbragur á okkar mönnum í kvöld. Menn greinilega búnir að grafa djúpt og stilla sig vel inn á leikinn allir sem einn, eftir ágjöfina í síðustu leikjum. Það er alveg sama hvað menn segja, það verður að vera liðsheild ef árangur á að nást. Og ef góð liðsheild er með brúklegt plan þá er ýmislegt hægt. Án liðsheildar er ekkert lið.
2.042 áhorfendum voru mættir á völlinn í kvöld og meirihluti þeirra skemmti sér hið besta.
Nú er landsleikjahlé fram undan en næsti leikur Blika er útileikur gegn ÍBV sunnudaginn 15.júní kl. 16:00.
Það er laust í Herjólfi ennþá.
Áfram Breiðablik!
OWK.
@breidablikfc BREIÐABLIK ????
♬ original sound - Breidablik FC