S
Breiðablik
3 0
Víkingur
Bikarkeppni KSÍ Undanúrslit Kópavogsvöllur 28.06.2026
17
3
13

Áfram Blikar — bikarinn bíður!

Lið Breiðabliks: Anton Ari Einarsson, Ásgeir Helgi Orrason, Ívar Örn Árnason, Arnór Gauti Jónsson, Viktor Karl Einarsson fyrirliði, Aron Bjarnason, Ágúst Orri Þorsteinsson, Davíð Ingvarsson, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Andri Rafn Yeoman.

Það var milt og gott veður í Smáranum þegar mætt var á leik Breiðabliks og Víkings í undanúrslitum Bikarsins. Eftir að venju gómsætan blikaborgara og gott knús frá Gulla settist ég spenntur fremst í stúkuna rétt við varamannabekk Breiðabliks. Gengi liðsins hefur eins og við öll vitum verið höktandi í sumar. Sérstaklega hefur þurft að stilla betur varnarleikinn. Það hefur verið hálfgrátlegt að sjá bilið aukast stanslaust í Víkinga í deildinni en gera sér grein fyrir að það vantar í raun bara herslumuninn til að liðinu fari að ganga miklu betur. Liðið á svo mikið inni og getur gert svo mikið betur. Þeir eru engum átján stigum verri en Víkingar. 

Annars var ég mjög bjartsýnn er liðin voru kynnt. Ég fann á mér að eitthvað stórkostlegt væri í uppsiglingu. Þar spilaði inn að strákurinn minn Gabríel Elías var kominn í boltasækjarann bakvið markið. Ég var viss um að hann myndi færa liðinu mikla lukku. Fyrir tveimur árum, hið frábæra tímabil 2024, var Gabríel Elías á því ári í yngri flokki þegar iðkendur fá að ganga inn á völlinn með leikmönnum. Þá gerði hann samviskusamlega alla leiki sumarsins nema einn (sem tapaðist). Við í fjölskyldunni göntuðumst með það að hann hefði verið sannkallað lukkudýr fyrir Blika það frábæra meistaraár. Nú er hann svo loks kominn á aldur í boltasækjarann fyrir meistaraflokk. Þetta var fyrsti leikurinn sem það var í boði og ég var viss um að hann myndi koma með lukkuna til aftur til Breiðabliks. Hann tók sér árvökull stöðu bakvið markið Fífumegin. 

Svo var flautað til leiks. Það gladdi mig mjög að við hliðina á mér sat mjög vösk og fjölmenn klappsveit ungra Blika sem stóð sig gríðarlega vel að halda uppi stemningu allan leikinn. Slíkt er ómetanlegt. Sannkallaður tólfti leikmaður. Inni á vellinum voru hins vegar bæði lið mjög varkár til að byrja með. Ætluðu ekki að taka neina sénsa það var ljóst. Stöðubaráttan var hörð en fátt um fína drætti. Á tuttugustu og þriðju mínútu átti Kristófer skalla úr hálffæri. Víkingar áttu einnig sín tvö hálffæri. Svo átti Kristófer annan skalla nálægt marki seint í hálfleiknum. Annars gerðist ekki margt í þessum fyrri hálfleik. Vörn Blika hélt hins vegar mjög vel og allt liðið barðist af miklum krafti. Ég hefði reyndar viljað sjá aðeins færri kýlingar fram, þær voru þó nokkrar þarna í fyrri hálfleik svona í anda Wimbledon í lok níunda áratugarins. Ég hefði einnig viljað sjá meira spil en heilt yfir gerðu Blikar betur en Víkingur í fyrri hálfleik. Mjög fagmannlegur hálfleikur að mörgu leyti og búið að stoppa vel í götin í vörninni. 

Í hálfleik var Andra Yeoman sem hafði verið traustur á miðjunni skipt út af fyrir hinn knáa og kraftmikla Gabríel Snæ. Stöðubaráttan hélt áfram en eftir því sem leið á seinni hálfleikinn fékk ég meira og meira á tilfinninguna að Blikar væru með stjórnina á leiknum. Blikar voru gríðarlega baráttuglaðir og harðir í alla bolta. Á sextugustu og níundu mínútu fékk Gabríel Snær gott marktækifæri. Ívar renndi boltanum upp kantinn og Gabríel spratt að marki og átti skot sem markmaður Víkinga varði á síðustu stundu. 

Það var svo á sjötugustu og fjórðu mínútu að Kristófer Ingi fór út af fyrir hið fimmtán ára undrabarn Arnar Gunnleifsson. Þegar hér var komið sögu hafði ég fært mig frá miðju til enda stúkunnar Fífumegin til að sjá betur væntanlegar sóknir Breiðabliks. Þar valdi ég rétt því gríðarlega gaman var þessar síðustu fimmtán mínútur leiksins að sjá ungu strákana í framlínunni valda Víkingum miklum usla með hraða sínum, krafti og tækni. Þeir sannarlega gerðu varnarmenn Víkinga mjög stressaða. Það sást langar leiðir. Á sjötugustu og sjöundu mínútu komst Ágúst Orri svo í boltann á kantinum eftir mistök Víkinga. Hann spratt upp völlinn og sendi boltann fyrir á Gabríel Snæ sem kom askvaðandi að vítateignum og renndi boltanum snyrtilega í markið. Eitt núll fyrir Blika. 

Eftir þetta var ég ekki í neinum vafa um hvernig leikurinn færi. Breiðablik hafði öll tök á vellinum. Það var svo er venjulegur leiktími var rétt runninn út að Arnór Gauti komst inn í sendingu Víkinga. Hann sendi boltann í fyrstu upp völlinn á Davíð sem var gríðarlega vel staðsettur og vakandi og renndi boltanum í hornið óverjandi fyrir markmann Víkinga. En Blikar voru ekki hættir. Á síðustu mínútunni átti Aron Bjarnason frábæra sendingu fram á Ágúst Orra sem tók mikinn sprett að marki Víkinga og renndi boltanum í netið af mikilli yfirvegun. 

Sanngjarn þrjú núll sigur Breiðabliks staðreynd. Það er enginn vafi á að ef liðið kemur með þetta hugarfar, baráttu, grimmd, sigurvilja og hungur í næstu leiki í deildinni nær það að saxa vel á forskot Víkinga á næstu mánuðum. Það var mikið fagnað og partý í stúkunni. Enginn fagnaði meira en boltastrákurinn Gabríel Elías sem ég held að verði bara að taka fleiri leiki bakvið markið á næstunni. Yndislegt kvöld á Kópavogsvelli. 

Harri