Blikar fóru enga frægðarför til Akureyrar þegar þeir mættu Þórsurum á sallafínum gervigrasvelli þeirra í Þorpinu í Bestu deild karl í gær. Niðurstaðan var 1:0 tap og áttum við ekkert skilið úr þessum leik. Sérstaklega var fyrri hálfleikur slakur hjá okkar drengjum. Spilamennskan skánaði í síðari hálfleik og þá sérstaklega síðustu 10 mínútur leiksins. En í heildina var sigur heimamanna sanngjarn og verðum við heldur betur að taka okkur saman í andlitinu fyrir næstu leiki!

Norðanmenn buðu upp á ágætis knattspyrnuveður, smá norðanstrekking en sól og heiður himinn gladdi áhorfendur. Flestir þeirra auðvitað á bandi heimamann en nokkrir Blikar höfðu lagt leið sína yfir Holtavörðuheiðina. En því miður virtist Blikaliðið ekki hafa fylgt þeim alla leið. Heimamenn voru miklu grimmari frá byrjun og var eins og hugur þeirra grænklæddu væri enn í Kópavoginu. Það er sannarlega áhyggjuefni hve Blikaliðið hefur verið andlaust í fyrri hálfleik í mörgum leikjum í sumar. Til að kóróna slakan leik þá gáfum við Þórsurum hornspyrnu klaufalega skömmu fyrir leikhlé og þökkuðu heimapiltar og skoruðu eina mark leiksins.

Seinni hálfleikur var skömminni skárri en sá fyrri en samt sem áður náðum við ekki að ógna marki Þórsara að neinu ráði. Það var ekki fyrr en Dagur Örn Fjeldsted og Kristófer Ingi komu inn á undir lok leiksins að sóknarþungi jókst. Með smá heppni hefðum við getað náð jöfnunarmarki undir lok leiksins en það hefði í raun ekki verið sanngjarnt. Baráttan og viljinni var miklu meiri heimapilta og því fór sem fór.

Auðvitað munar um að missa lykilmenn eins og Viktor Karl og Ívar út af meidda en samt sem áður þurfa þá aðrir leikmenn að stíga upp. Að vísu átti hinn ungi Gabríel Snær Hallsson ágætan leik á miðjunni  og hefur hann farið vaxandi í undanförnum leikjum. Svo var ánægjulegt að sjá Kristófer Inga aftur inn á vellinum síðustu 12 minútur leiksins. Það sást strax hve munar um svona stóran og sterkan leikmann sem getur tekið á móti bolta með mann í bakinu. En það þýðir ekkert að gráta Björn bónda! Við verðum bara að safna liði og hefna þessa taps.

Næsti leikur er gegn Valsmönnum á sunnudaginn og þar er víst möguleiki að hægt verði að tefla fram leikreyndara liði en í undanförnum leikjum. Við áhangendur verðum líka að mæta vel og styðja strákana áfram.

Áfram Blikar, alltaf-alla leið!

-AP