Andri Rafn Yeoman með 3 ára samning
29.10.2010Ágætu Blikar, Andri Rafn Yeoman hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Þessi efnilegi 18 ára gamli miðvallarleikmaður sló svo sannarlega í gegn í sumar og átti flotta innkomu í Íslandsmeistaralið Breiðabliks. Hann spilaði 17 leiki og skoraði 2 mörk. Þar að auki hefur hann átt fast sæti í unglingalandsliðum Íslands undanfarin tvö ár.
Við fögnum þessum samningi enda ljóst að Andri Rafn verður lykilmaður í liði Breiðabliks á komandi árum.
Þess má einnig geta að þrír lykilmenn í meistaraflokki kvenna hafa endurnýjað samning sinn við deildina. Þetta eru þær Sara Björk Gunnarsdóttir , Fanndís Friðriksdóttir og Guðrún Erla Hilmarsdóttir. Þetta eru mjög góð tíðindi enda voru þessar þrjár stúlkur í lykilhlutverki í sumar. Í bígerð er að klára fleiri samninga á næstu dögum við leikmenn meistaraflokks kvenna.