Frábærar fréttir frá Kópavogsvelli

Markmaðurinn Anton Ari Einarsson tilkynnti í gærkvöld um framlengingu samnings við Knattspyrnudeild Breiðabliks út árið 2028.

Ferill

Anton Ari kom til Breiðabliks frá Val árið 2020, er fæddur árið 1994 og hefur spilað 246 mótsleiki leiki með Breiðabliki. Varð Íslandsmeistari tvisvar og að sjálfsögðu hluti af sögufrægu liði Blika sem tryggði sig fyrst íslenskra karlaliða í riðlakeppni í Evrópu.

Landsleikir: 

Tveir leikir með A-landsliði Íslands

Viðurkenningar:

Viðurkenningarskjal árið 2025 fyrir 200 mótsleiki með Blikum

Viðurkenningarskjal árið 2022 fyrir 100 mótsleiki með Blikum

Gull­hanskinn er af­hent­ur þeim markverði sem held­ur oft­ast hreinu á keppn­is­tíma­bili Bestu deild­ar­inn­ar.  Árið 2022 hreppti Anton Ari gull­hansk­ann þegar hann var af­hent­ur fyrst og aftur vinnur árið 2024.

Anton Ari hefur fengið á sig fæst mörk eftir 4 umferðir í Bestu deildinni í ár - aðeins 1 mark!

PÓÁ