Aron Bjarna framlengir
14.04.2019Framherjinn knái Aron Bjarnason hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks. Aron sem er 23 ára gamall hefur spilað 61 mótsleik fyrir Breiðablik og skorað í þeim 14 mörk. Hann hefur einnig leikið með Þrótti, ÍBV og Fram á ferlinum.
Aron kom til Breiðabliks frá ÍBV árið 2017 og hefur verið mikilvægur hlekkur í sóknarleik Blikaliðsins frá þeim tíma.
Aron hefur tekið stöðugum framförum síðan hann kom og hefur verið nær óstöðvandi á undirbúningstímabilinu. Hann mun án efa koma gríðarlega sterkur til leiks í mótið sem er að hefjast.
Við Blikar fögnum þessum frábæru tíðindum. Það verður virkilega spennandi að fylgjast með þessum öfluga kantmanni á komandi tímabili.
-AP