Fréttir
Aron Bjarnason með þriggja ára samning við Blika
Aron Bjarnason með þriggja ára samning við Blika Aron Bjarnason með þriggja ára samning við Blika Aron Bjarnason með þriggja ára samning við Blika

Knattspyrnudeild Breiðablikas og knattspyrnuráð ÍBV hafa náð samkomulagi um skipti á leikmönnum.

Aron Bjarnason kemur frá Vestmannaeyjum til Blika og Arnór Gauti fer til ÍBV. Samningurinn við Aron er til þriggja ára. Aron Bjarnason er 21 árs fjölhæfur miðju- og sóknarmaður sem hefur verið í herbúðum Eyjamanna í tvö ár. Hann er uppalinn Þróttari en lék í tvö tímabil með Frömurum áður en hann fór í ÍBV.  Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann spilað 92 leiki með meistaraflokki og hefur skorað 13 mörk. Aron átti mjög gott tímabil með Eyjamönnum í fyrra, lék 21 leik í deildinni og skoraði 5 mörk. Hann hefur leikið 10 leiki með yngri landsliðum Íslands. Blikar fagna þessum liðsstyrk og ljóst að með þessu eykst samkeppnin í Blikaliðinu umtalsvert.

Við Blikar kveðjum á sama tíma Arnór Gauta með söknuði. Hann er tvítugur sóknarmaður sem kom til okkar frá Aftureldingu fyrir þremur árum og varð m.a. Íslandsmeistari með okkur í 2. flokki 2015. Hann var lánaður í Selfoss í 1. deildina í fyrra og stóð sig vel. Hann á að baki einn leik með U-19 ára landsliði Íslands. Við sendum honum kveðjur og vonum að hann standi sig vel í hvítu treyjunni (nema gegn okkur).

✕ ‹ ›