BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Besta deildin 2024: Breiðablik - KA

17.06.2024 image

Eftir langt landsleikjahlé er næsti leikur okkar manna í Bestu deildinni á miðvikudaginn þegar KA-menn koma í heimsókn í Kópavoginn. 

Flautað verður til leiks kl.19:15! 

Miðasalan er á Stubbur. 

Græna stofan opnar klukkutíma fyrir leik. Píluspjöld í boði. Börger á útigrilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni.

Staðan í deildinni fyrir 10. umferðina:

image

Sagan & Tölfræði

Keppnisleikir Breiðabliks og KA í öllum mótum eru 51. Vinningshlutfallið fellur með okkur - 32 sigrar gegn 12 - jafnteflin eru 7.

Efsta deild

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 27 leikir. Blikar hafa unnið 18 leiki gegn 4 - jafnteflin eru 5. Á kópavogsvelli eru leikirnir 13. Blikar með tíu sigra, eitt tap og tvö jafntefli,. 

Síðustu 5 heimaleikir gegn KA í efstu deild:

Leikmannahópurinn

KA maðurinn Elfar Árni Aðalsteinsson lék 105 mótsleiki með Blikaliðinu á árunum 2012-2015 og skoraði 29 mörk. Einnig er framkvæmdastjóri KA, Sævar Pétursson, fyrrverandi leikmaður Blika með 119 mótsleiki og 23 mörk.

Leikmenn sem komu til okkar fyrir keppnistímabilið:

Kristinn Jónsson (KR) Kiddi Jóns kominn heim * Aron Bjarnason (Ungverjaland) Aron Bjarna mættur í grænt * Arnór Gauti Jónsson (Fylkir) Arnór Gauti mættur í Kópavoginn * Benjamin Stokke (Noregur) Norski framherjinn Benjamin Stokke til Breiðabliks * Daniel Obbekjær (Færeyjar) Daniel Obbekjær gerir 3 ára samning við Breiðablik * Ísak Snær Þorvaldsson á láni (Noregur) Ísak Snær aftur í Kópavoginn.

Leimenn Breiðabliks sem voru á láni hjá öðrum liðum 2023: Dagur Örn Fjeldsted (Grindavík) - Eyþór Aron Wöhler (HK) - Pétur Theódór Árnason (Gróttu). Í mars rifti Pétur samningi sínum við Breiðablik og íhugar að hætta í fótbolta, en meiðsli hafa sett risastórt strik í feril hans undanfarin 2-3 ár. - Tómas Orri Róbertsson (Grindavík) - Tumi Fannar Gunnarsson (Augnablik) - Viktor Elmar Gautason (Augnablik)

Leikmenn Breiðabliks á láni hjá öðrum liðum keppnistímabilið 2024: Ásgeir Helgi Orrason (Keflavík). Tómas Orri Róbertssson (Grótta). 

Farnir: Alex Freyr Elísson (Fram...var á láni hjá KA) - Anton Logi Lúðviksson (Noregur) - Arnar Númi Gíslason (Fylkir...var á láni hjá Gróttu) - Ágúst Eðvald Hlynsson (Danmörk) - Davíð Ingvarsson (Danmörk) - Gísli Eyjólfsson (Svíþjóð) - Hilmar Þór Kjærnested Helgason (Fylkir) - Klæmint Olsen (Færeyjar ...var á láni frá NSÍ) - Oliver Stefánsson (ÍA). - Eyþór Aron Wöhler (KR)

Teymið: Halldór Árnason er aðalþjálfari Breiðabliksliðsins. Aðstoðarþjálfari er Eyjólfur Héðinsson. Eiður Eiríksson er transition þjálfari. Stryrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Marinó Önundarson og Brynjar Dagur Sighvatsson. 

image

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins er ekki uppalinn Bliki en hefur tengst félaginu síðan 2020, sem þjálfari, meðlimur í stjórn Blikaklúbbsins og við skrif á blikaris kvk og x-síðu blikaris kvk (fyrrum twitter). Sem barn og unglingur æfði hún í grænni treyju en þó ekki Breiðabliks heldur Völsungs. SpáBlikinn lætur fáa Blika leiki framhjá sér fara og reynir að mæta reglulega á völlinn.

 

Anna Björg Lindberg - Hvernig fer leikurinn?

Leikurinn gegn KA á miðvikudaginn verður hörkuleikur. Norðanmenn eru bognir en ekki brotnir eftir erfiða byrjun í deildinni og eru orðnir örvæntingafullir að ná í stig. Þeir koma því inn í leikinn af miklum krafti. Blikar munu þó hafa yfirhöndina mest allan leikinn og þetta endar 4-1.

Dagskrá

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á miðvikudagskvöld kl.19:15! 

Græna stofan opnar klukkutíma fyrir leik. Píluspjöld í boði. Börger á útigrilli, rjúkandi kaffi og góðmeti í sjoppunni.

Miðasalan er á Stubbur. 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

Mörkin og atvik úr leik Breiðabliks og KA á Kópavogsvelli 21.maí í fyrra:

Til baka