BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Besta deildin 2024: Stjarnan – Breiðablik

08.08.2024 image

Við heimsækjum Stjörnumenn í Garðabæ á sunnudaginn í 18. umferð Bestu deildar karla 2024.

Flautað verður verður til leiks á Samsungvellinum kl.19:15!

Miðasala er á Stubb

Stöð 2 Sport sýnir leikinn fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. 

Staðan í deildinni eftir 17 umferðir - Blikar í 2. sæti með 33 stig og eiga inni frestaðan leik við Val - Stjarnan er í 7. sæti með 23 stig.
 

image

Sagan & Tölfræði

Mótsleikir

Innbyrðis mótsleikir Breiðabliks og Stjörnunnar eru 72. Blikar leiða með 33 sigra gegn 27 - jafnteflin er 12.

Efsta deild

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 40. Staðan er okkar mönnum í vil með 21 sigra gegn 11 - jafnteflin eru 8. 

Markaskorun í þessum 39 leikjum er: Breiðablik 77 mörk, Stjarnan 54 mörk.

Leikir liðanna í efstu deild í Garðabænum eru 18. Blikar leiða þar með 8 sigra gegn 6 - jafteflin eru 4.

Síðustu 5 viðureignir liðanna í efstu deild í Garðabænum:

Leikmannahópurinn

Aðalþjálfari heimaliðsins - Jökull Ingason Elísarbetarson - hefur spilað í grænu Breiðablikstreyjunni. Jökull lék 116 mótsleiki með Blikum á árunum 2010-2013 og  varð Íslandsmeistari með Blikaliðinu árið 2010.

Uppalinn Bliki, Guðmundur Kristjánson, leikur nú með Stjörnunni. Guðmundur spilaði 136 mótsleiki og skoraði 36 mörk með Breiðabliki á árunum 2006-2012 og var sterkur póstur í Bikarmeistaraliði Breiðabliks 2009 og Íslandsmeistaraliðinu 2010. Og Sindri Þór Ingimarsson er uppalinn hjá Breiðabliki. 

Í þjálfarateymi Breiðabliks eru tveir fyrrverandi leikmenn Stjörnunnar. Eyjólfur Héðinsson aðstoðarþjálfari með 126 leiki á árunum 2016-2021. Og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari með 138 leiki á árunum 2017-2022.

Okkar maður Kristófer Ingi Kristinsson er uppalinn hjá Stjörnunni en hélt mjög ungur út í atvinnumennsku og náði þ.a.l. aðeins einum mótsleik með Stjörnuliðinu.

Leikmenn sem komu til okkar fyrir keppnistímabilið:

Kristinn Jónsson (KR) Kiddi Jóns kominn heim * Aron Bjarnason (Ungverjaland) Aron Bjarna mættur í grænt * Arnór Gauti Jónsson (Fylkir) Arnór Gauti mættur í Kópavoginn * Benjamin Stokke (Noregur) Norski framherjinn Benjamin Stokke til Breiðabliks * Daniel Obbekjær (Færeyjar) Daniel Obbekjær gerir 3 ára samning við Breiðablik * Ísak Snær Þorvaldsson á láni (Noregur) Ísak Snær aftur í Kópavoginn.

Leimenn Breiðabliks sem voru á láni hjá öðrum liðum 2023: Dagur Örn Fjeldsted (Grindavík) - Eyþór Aron Wöhler (HK) - Pétur Theódór Árnason (Gróttu). Í mars rifti Pétur samningi sínum við Breiðablik og íhugar að hætta í fótbolta, en meiðsli hafa sett risastórt strik í feril hans undanfarin 2-3 ár. - Tómas Orri Róbertsson (Grindavík) - Tumi Fannar Gunnarsson (Augnablik) - Viktor Elmar Gautason (Augnablik)

Leikmenn Breiðabliks á láni hjá öðrum liðum keppnistímabilið 2024: Ásgeir Helgi Orrason (Keflavík). Tómas Orri Róbertssson (Grótta). 

Farnir: Alex Freyr Elísson (Fram...var á láni hjá KA) - Anton Logi Lúðviksson (Noregur) - Arnar Númi Gíslason (Fylkir...var á láni hjá Gróttu) - Ágúst Eðvald Hlynsson (Danmörk) - Davíð Ingvarsson (Danmörk) - Gísli Eyjólfsson (Svíþjóð) - Hilmar Þór Kjærnested Helgason (Fylkir) - Klæmint Olsen (Færeyjar ...var á láni frá NSÍ) - Oliver Stefánsson (ÍA). - Eyþór Aron Wöhler (KR) - Jason Daði Svanþórsson (Grimsby FC)

Teymið: Halldór Árnason er aðalþjálfari Breiðabliksliðsins. Aðstoðarþjálfari er Eyjólfur Héðinsson. Eiður Eiríksson er transition þjálfari. Stryrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Marinó Önundarson og Brynjar Dagur Sighvatsson. 

image

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins er alinn í vesturbæ Kópavogs og býr þar enn og hefur aldrei farið yfir brúna.

Hann hóf að spila knattspyrnu á Vallargerðisvelli ungur að aldri og var einn af þeim sem voru Íslandsmeistarar í knattspyrnu 1974. Síðan hafa leikirnir og titlarnir verið ansi margir og enn er von þar sem búið að stofna Íslandsmót fyrir 60 ára og eldri. 

Þá þjálfaði SpáBlikinn hjá Breiðabliki yngstu flokka kvenna 1988-1989 og sá um eldra lið Breiðablik á árunum 1997-2012 auk þess að spila með. Þá hafa börnin öll leikið með Breiðablik í yngri flokkum og barnabarnið byrjað að æfa og spila.  Þessu hefur öllu  fylgt mikið af ferðalögum og segja má að Breiðablik hafi spilað stóran part af lifi SpáBlikans.

Ingvaldur Gústafsson - Hvernig fer leikurinn?

Leikur dagsins fer 3-1 fyrir Breiðablik alverg eins og síðasti leikur sem Ingi Gúst. spilaði í efstu deild fyrir Breiðablik 1991. Í þeim leik var ég búinn að fá leyfi til að láta taka mig útaf kl.15:30  þar sem ég átti að vera mættur í brúðkaup kl. 16. Var á kantinum fjær varamannabekknum og hljóp eins og brjálæðingur útaf vellinum þegar mér var skipt útaf.  Áhorfendur þess leiks eru enn að reyna að átta sig á þessu.

Áfram Breiðablik!

"Nýleg" mynd af SpáBlika leiksins - Ingvaldi Gústafssyni

Dagskrá

Miðasala er á Stubb

Flautað verður til leiks á sunnudagskvöld kl.19:15! 

Leikurinn verður sýndur á Stöð 2 Sport fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

Klippur frá leik liðanna á Kópavogsvelli í fyrri leik liðanna í sumar:

Til baka