BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Besta deildin 2025: Breiðablik - Fram

20.06.2025 image

Eftir tvo leiki og sterka sigra í deildinni í júní er komið að fyrsta leik í seinni umferð Bestu deildarinnar fyrir úrslitakeppnina sem hefst í lok september. Við fáum sprækt lið Fram í heimsókn á Kópavogsvöll – fyrst karlaliða – eftir 50 ára afmælisdag Kópavogsvallar sem var 7. júní 2025. Vígsluleikur Kópavogsvallar var leikur Breiðabliks gegn Ólafsvíkur Víkingum í júní fyrir 50 árum í næst efstu deild sem þá hét 2. deild. Kópavogsvöllur var lengi einn albesti grasvöllurinn, enda upphitaður, en skipt var yfir á gervigras fyrir keppnistímabilið 2019 og yfirborðið endurnýjað árið 2023 til að viðhalda gæðum vallarins samkvæmt UEFA stöðlum fyrir Evrópukeppnir.

Flautað verður til leiks Breiðabliks og Fram á Kópavogsvelli á mánudaginn kl.19:15!

Miðasala á leikinn er á Stubb

Kópacabanamenn mæta vopnaðir söngbók og hvetja alla til að grípa sér söngbókina í Grænu Stofunni fyrir leik. Mögnuð innsigling sveitarinnar í Vestmannaeyjahöfn fyrir leikinn gegn ÍBV og stuðningurinn í stúkunni á leiknum gaf tóninn í Eyjum. 

Blikar einu stigi frá toppsætinu eftir 11 umferðir:  

Á tuttugasta ári í efstu deild

Breiðablik er í ár að spila sitt 20. tímabil í röð í efstu deild frá því liðið vann sæti þar að nýju með sigri í 1. deildinni 2005. Áður höfðu Blikar lengst leikið 5 ár samfellt í efstu deild 1980 – 1984. Gengi liðsins í tölum í efstu deild í ár og síðustu 19 ár er mjög góð. Þrisvar hefur liðið unnið Íslandsmeistaratitilinn og strákarnir í Breiðabliki eru ríkjandi meistarar. Í 8 ár af 19 árum endar liðið í þremur efstu sætunum og í aðeins 2 skipti er liðið ekki í efri hlutanum í lok móts.

Sagan & Tölfræði

Mótsleikir Fram og Breiðabliks í öllum keppnum frá fyrsta leik árið 1961 eru 77. Fram leiðir með 35 sigra gegn 24 - jafnteflin eru 18.

Efsta deild

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi (1971) eru 59. Vinningshlutfallið fellur með Fram með 27 sigra gegn 16 - jafnteflin eru 16. 

Efsta deild frá 2006

Hlutfallið er jafnt frá endurkomu Breiðabliks upp í efstu deild árið 2006. Innbyrðis leikir liðanna í efstu síðan þá eru 23. Bæði lið með 8 sigra - jafnteflin eru 7.

í 11 leikjum frá 2006 hafa Blikar yfirhöndina á Kópavogsvelli með 5 sigra gegn 2 - jafnteflin eru 4

Síðustu 3 heimaleikir okkar á Kópavogsvelli gegn Fram í efstu deild:

Leikmannahópur Breiðabliks 2025

image

​​​​​​​Stuðningsmaðurinn

Arnór Heiðar Arnórsson er SpáBliki leiksins gegn Fram. Blikinn er fæddur í júlí 1954, á æskuheimilinu í austurbæ Kópavogs, innarlega við Digranesveginn. Sem barn hafði ég ekkert sérstakt dálæti á íþróttum – en auðvitað tók maður þátt í boltasparki með strákunum. Þegar nágranni minn, sem var eldri, fór að æfa með Blikum og þótti „rosa góður“, fór ég að fylgjast með honum og öðrum drengjum í hverfinu – og áhuginn kviknaði. Það var svo leikur KR við Liverpool í ágúst 1964 sem varð til þess að ég fór að fylgjast með enska boltanum og hef frá því verið stuðningsmaður Liverpool… kannski áttu Bítlarnir frá sömu borg einhvern þátt í því líka.

Fyrstu sporin í félagsstarfi hjá klúbbnum okkar. Breiðablik var alltaf klúbburinn minn og maður fór á Vallargerðisvöllinn að fylgjast með gangi mála. Um tvítugt var ég orðinn starfsmaður á opinberri skrifstofu í Kópavogi. Þar kynntist ég margvíslegu fólki – meðal annars sómahjónunum, þeim Huldu Pétursdóttur og Þórhalli Einarssyni, sem margir þekkja úr íþróttalífi bæjarins fyrr á árum. Þegar þau kíktu á skrifstofuna til að reka erindi sín tókum við oft tal saman um boltann og klúbbinn okkar, Breiðablik. Hulda var baráttukona og var búin að sitja í stjórnum félagsins og taka virkan þátt í starfinu. Hún var afar sannfærandi talsmaður og eiginlega „plataði“ mig í varastjórn félagsins árið 1976.

Það leiddi fljótlega til setu í stjórn knattspyrnudeildar árið 1977, þar sem ég sinnti störfum sem ritari í stjórn. Þetta var krefjandi verkefni en afar gefandi og skemmtilegt starf.

Blikastaðir, búningatöskur og barátta á Kópavogsvelli. Í Vallargerðinu var aðstaðan lítil sem engin, en við létum það ekki stöðva okkur. Stjórnarfundir voru annað hvort haldnir í aðstöðu í Félagsheimili Kópavogs eða á heimilum stjórnarmanna. Deildin var eiginlega ekki með neitt fast aðsetur. Svo fengu einhverjir þá snilldarhugmynd að leigja gamlan sumarbústað í suðurhlíðum bæjarins, og breyta honum í félagsaðstöðu fyrir knattspyrnudeildina.Mikil breyting til batnaðar á skömmum tíma og hægt að funda á Blikastöðum fyrir leik og oft var liðum utan af landi svo boðið upp á hressingu þar eftir leiki. Mynd: Blikastaðir árið 1978

Ég hafði verið fenginn tímabundið sem liðsstjóri árið 1978 – en gleðilega fór það svo að ég gegndi því hlutverki í fjögur til fimm ógleymanleg ár. Starfið fól í sér æfinga- og leikjaferðaskipulag, samskipti við leikmenn og aðstoð við þjálfara – og svo auðvitað að það að koma búningatöskum til og frá keppnisstað. Þetta var samt draumatímabil – félagsskapurinn, stemningin í klefanum og leikgleðin skiptu mestu. Í leikmannahópnum á þessum árum voru óborganlegir gleðigjafar á borð við þá bræður Basla og Gulla, auk Vignis Baldurssonar og Þórs Hreiðarssonar. Þetta voru hressustu gaurarnir í bænum og kunnu svo sannarlegar að halda uppi stuði og stemmingu í klefanum.

Meira vatn, en minna vit á fótbolta…. Ég hafði sjálfur takmarkað vit á fótbolta – og það átti við um flesta þá sem tóku við af mér, enda þurfti þess ekki. Aðalmálið var að hafa vatnsbrúsana klára við varamannabekkinn og tryggja að heitt te væri klárt í hálfleik. Með góðum leikmönnum og öflugum þjálfurum náðum við góðum árangri – komust upp í fyrstu deildina árið 1979. Þarna stigu sín fyrstu spor leikmenn eins og Siggi Grétars, Sigurjón Kristjáns, Helgi Bents, Trausti Ómars, Guðmundur Ásgeirs svo nokkrir séu nefndir. Við vorum með gríðarlega efnilega leikmenn í hópnum á þessum árum. 

Meistaraflokkur Breiðabliks árið 1979. Efri röð f.v: Jón Ingi Ragnarsson formaður knattspyrnudeildar, Gunnlaugur Helgason, Þór Hreiðarsson, Helgi Helgason, Valdimar Valdimarsson, Ólafur Björnsson, Benedikt Guðmundsson, Ómar Rafnsson, Arnór H. Arnórsson formaður meistaraflokksráð karla, Jón Hermannssonn þjálfari. Fremri röð f.v: Tómas Þór Tómasson, Sigurjón Rannversson, Ingólfur Ingólfsson, Sveinn Skúlason,Vignir Baldursson, Árni Dan Einarsson, Sigurður Halldórsson, Sigurður Grétarsson og Hákon Gunnarsson.

Áframhaldandi þátttaka og stuðningur Síðar sinnti ég þjónustu í „heldri stofunni“ í glerbúrinu á Kópavogsvelli ásamt yngri syni mínum. Þetta var skemmtileg endurkoma inn í félagslífið. Ég hvet alla Blika til þátttöku í félagsstarfinu okkar – það tengir fólk sterkum böndum við klúbbinn.

Arnór Heiðar Arnórsson - Hvernig fer leikurinn?

Við þurfum að rífa okkur í gang – og ég spái markaleik, 4–2 sigur fyrir Blika! Tvö mörk frá Högga (vítaspyrna og skot utan teigs), og síðan eitt frá Tobias og eitt frá Óla Val. Þá er 4–2 í höfn og við höfum náð okkar 3 stigum til baka…!

Koma svo Blikar!

SpáBliki leiksins - Arnór H. Arnórsson 

Dagskrá

Flautað til leiks á Kópavogsvelli kl.19:15 á mánudaginn.

Miðasala á leikinn er á Stubb

Kópavogsvöllur opnar 17:30. Blikaborgarar á grillinu. Kaffi og góðgæti í Blikasjoppunni. Brasserie Kársnes vagninn mætir. Græna stofan opin.

Mætum í stúkuna á Kópavogsvelli og hvetjum okkar menn til sigurs.

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Klippur úr síðustu heimsókn Fram á Kópavogsvöll í Bestu deildinni í ágúst 2024: 

Til baka