Besta deildin 2025: Breiðablik - ÍA
27.05.2025
Við fáum Skagamenn í heimsókn á Kópavogsvöll á fimmtudag - Uppstigningardag.
Flautað verður til leiks kl.16:15.
Miðasala er á: Stubb
Leikurinn verður sýndur á BD rás Stöðvar 2 fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Eftir 8 umferðir er Blikaliðið í 3. sæti með 16 - einu stigi frá efsta sæti.
Sagan & Tölfræði
Innbyrðis leikir Breiðabliks og ÍA í öllum mótum frá fyrsta leik árið 1965 eru 129. Skagamenn leiða með 64 sigra gegn 42 sigrum Blika - jafnteflin eru 23.
Frá 1965 til 2000 unnu Skagamenn nánast alla mótsleiki liðanna þ.m.t. 20 leiki af 35 innbyrðis leikjum liðanna í Litlu bikarkeppninni sem Albert Guðmundsson átti stóran þátt í að setja á laggirnar, en hann var á þeim tíma spilandi þjálfari Hafnfirðinga (ÍBH). Albert gaf sem sagt farandbikar til keppninnar. Mótið var hugsað sem æfingamót fyrir „utanbæjarliðin" áður en Íslandsmótið hæfist, til mótvægis við Reykjavíkurmótið. Keppnin stóð yfir í 34 ár - frá 7. maí árið 1961 og lauk í maí 1995. Samtals voru spilaðir 850 leikir í Litlu bikarkeppninni. Árið 1996 hófst síðan nýtt mót, Deildabikarkeppni KSÍ (Lengjubikarinn), og hún tók því raun við af Litlu bikarkeppninni en þar voru hins vegar öll lið með, utan Reykjavíkur sem innan. Skagamenn sigruðu Breiðablik 3-1 í fyrsta úrslitaleik Deildabikarsins sem leikinn var á grasvelli FH-inga í Kaplakrika um miðjan maí 1996.
Þungavigtarbikarinn - Úrslitaleikur 2025. Fyrir keppnistímabilið 2025 lék Blikaliðið til úrslita við ÍA í Þungavigtarbikarnum. Tíðindamaður blikar.is skrifar "Blikar unnu ÍA 3:2 í fjörugum og skemmtilegum leik í Þungavigtarbikarnum á Kópavogsvelli í dag. Við vorum reyndar undir í leikhléi enda spiluðum við gegn sterkum vindi. En þrjú mörk í síðari hálfleik tryggðu sigur okkar pilta. Arnór Gauti jafnaði leikinn með hörkuskoti skömmu eftir leikhlé, Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008) kom okkur yfir með gullskalla og það var síðan Maríus Warén (2008) sem tryggði okkur sigurinn með fínu skoti sem markvörður Skagamanna réð ekki við. Það má því segja að yngri kynslóðin hafi klárað leikinn fyrir okkur! Þess má geta að þetta voru fyrstu mörk Gunnleifs og Maríusar fyrir meistaraflokk Breiðabliks enda eru þeir aðeins á 17 ári."


Efsta deild
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild eru 64. Vinningshlutfallið fellur með Skagamönnum - 33 sigrar gegn 22 - jafnteflin eru 9.
Frá endurkomu Blikaliðsins upp í efstu deild árið 2006 fellur sigurhlutfallið með Blikum: 15 sigrar, 6 töp og 5 jafntefli
Efstu deildar heimsóknir Skagamanna á Kópavogsvöll frá upphafi eru 33. Staðan er jöfn. Skagamenn með 15 sigra gegn 14 Blikasigrum – jafnteflin eru 4.
Síðustu 5 heimaleikir gegn ÍA á Kópavogsvelli í 22 umferða deild:










Leikmannahópurinn
Skagapilturinn Oliver Stefánsson hefur leikið í grænu Breiðablikstreyjunni. Og okkar maður Viktor Örn Margeirsson spilaði sem lánsmaður hjá ÍA hálft tímabil árið 2017.
Leikmannahópur Breiðabliks 2025
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksing gegn ÍA ólst upp í vesturbænum í Kópavogi og var mikið á Vallargerðisvelli hjá Valda gamla, byrjaði að æfa með kvennaliðinu 1977, þá 12 ára að verða 13. Var með Blikaliðinu á upphafsárum og fastur leikmaður í liðinu þegar við stelpurnar lönduðum fyrsta Íslandsmeistaratirlinum árið 1979. Svava spilaði 120 mótsleiki með Breiðabliki og skoraði 10 mörk.
Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks 1981. Svava fyrir miðju í aftari röð.
Við vorum 6 systkynin en þau eldri voru ekkert í fótbolta, en ég dró Siggu systir með um leið og hún hafði aldur til.
Spilað með í flest öllum mótum fram til 1990 þegar ég varð ófrísk og eignaðist son minn. Er stolt af að hafa verið valin í fyrsta kvennalandsliðið og spilaði nokkra leiki með A-landsliði Íslands á árunum 1981 - 1986.
Svava Tryggvadóttir - hverning fer leikurinn?
Hef trú á strákunum á heimavelli og þeir vinna 3-1. Skaginn er sýnd veiði en ekki gefin. Lið ÍA er búið að vinna tvo leiki af átta og markatalan er 8-20. ÍA er ekki að finna taktinn í deildinni í ár en eitt er víst, leikir þessara tveggja liða á Kópavogsvelli hafa alltaf verið spennandi. Samkvæmt óformlegri rannsóknarvinnu minni þá hafa liðin mæst á síðustu 25 árum, 16 sinnum á Kópavogsvelli í efstu deild. Markatalan 35-18 Blikum í vil. Það eitt sýnir samt ekki að Skagamenn hafa verið auðveld bráð í gegnum tíðina því þeir leggja allt undir. Okkar menn gerðu jafntefli við Skagann í fyrra á Kópavogsvelli í fyrri umferð mótsins en unnu svo leik liðanna á sama velli í efri hlutanum í september. Ég hef bullandi trú á okkar mönnum, þeir eru að slípast saman eftir að hafa fengið nýja leikmenn í hópinn og ég tel að ÍA verði engin hindrun. Mörk frá Höskuldi, Tobias og Óla Val tryggja sigurinn en sem áður sagði þá þarf allt liðið að hafa fyrir þessum sigri.
T.v. SpáBlikinn Svava Tryggvadóttir og litla systir Sigríður Tryggvadóttir
Dagskrá
Flautað verður til leiks kl.16:15 á fimmtudag - Uppstigningardag.
Miðasala er á: Stubb
Leikurinn verður sýndur á BD rás Stöðvar 2 fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Mætum í stúkuna á Kópavogsvelli og hvetjum okkar menn til sigurs.
Hamborgarar á grillinu, Blikasjoppan og Græna stofan opin. Við bjóðum stuðningsmenn ÍA sérstaklega velkomna í upphitun fyrir leik. Þjálfaraspjall í Grænu stofunni.
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
PÓÁ
Klippur úr leik liðanna í 1. umferð úrslitakeppninnar 2024: