BLIKAR.IS STUÐNINGSMANNAVEFUR

Besta deildin 2025: Stórleikur! Breiðablik – Víkingur R.

31.05.2025 image

Stórleikur á Kópavogsvelli á sunnudaginn

Á sunnudaginn fáum við Reykjavíkur Víkinga í heimsókn á Kópavogsvöll í stórleik umferðarinnar. Gestaliðið er í efsta sæti töflunnar með 20 stig og heimaliðið í þriðja sæti með 16 stig.

Síðustu 4 ár hefur baráttan um sigur í Bestu deild karla verið á milli liðanna sem mætast á sunnudagskvöld í sannkölluðum 6 stiga leik.

Árið 2021 eru Blikar með báðar hendur á bikarnum en lygileg röð atvika í næst síðustu umferð verður til þess að Breiðablik missti af titlinum. Víkingur vinnur deildina 2021 með 48 stig í 22 umferðum. Breiðablik endar í 2. sæti með 47 stig.

Árið 2022 vinnur Breiðablik Bestu deildina með yfirburðum. Blikar hala inn 63 stig í 27 umferðum -  Víkingur endar í 2. sæti með 48 stig.

Árið 2023 vinna Víkingar Bestu deildina með yfirburðum. Síðari hluta sumars er Breiðabliksliðið í fullri þátttöku í Evrópukeppnum UEFA sem sem skilar okkar mönnum alla leið inn í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar – fyrst íslenskra karlaliða. Liðið endar í 4. sæti í Bestu deildinni það ár.  

Árið 2024 það Breiðablik sem sem stendur uppi sem Íslandsmeistari eftir hreinan úrslitaleik gegn Víkingum á þeirra á heimavelli í Fossvoginum í síðustu umferð Bestu deildarinnar 27. október 2024.

Eftir tvo tapleiki í röð verða okkar menn að gyrða sig í brók og mæta Fossvogspiltum af sömu eða meiri festu en við gerðum í úrslitaleiknum gegn þeim 27. október í fyrra.

Leikurinn

Heimaleikur okkar manna í 10. umf Bestu deildar karla á sunnudaginn þegar Reykjavíkur Víkingar koma í heimsókn á Kópavogsvöll. Flautað verður til leiks kl.19:15!

Miðasala á leikinn er á: Stubb

Kópavogsvöllur opnar 17:30. Blikaborgarar á grillinu. Brasserie Kársnes vagninn mætir. Trúbadorarnir Arnþór og Bjarki frá 18.15. Græna stofan opin. 

Stöð 2 Sport sýnir leikinn fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Kópacabana mætir!

Hilmar Jökull, sem er búinn að reyna að hætta sem formaður Kópacabana þrisvar sinnum, hefur enn einu sinni ákveðið að virkja stemninguna og hefur þetta að segja við Blika:

„Kæru Blikar, það er ekki nóg að vera áhorfandi, við þurfum ÖLL að vera stuðningsmenn. Á sunnudaginn næsta sýnum við hvað í okkur býr. Ég man ennþá eftir kvöldinu 27. október þegar 250 herskáir Blikastuðningsmenn mættu í víkina og tóku þar yfir. Við í Kópacabana ætlum að hita upp í grænu stofunni fyrir leik og þið þekkið flest öll lögin okkar, þannig hefjið upp raust og syngið með svo strákarnir finni fyrir alvöru STUÐNING!“ Mynd: Hafliði Breiðfjörð

Staðan í Bestu deild karla eftir 9 umferðir. Blikar í 3 sæti með 16 stig - 4 stigum á eftir toppliðinu:

image

Sagan & Tölfræði

Allir mótsleikir liðanna frá fyrsta leik 17.júlí 1957 eru 98 sem skiptast svona: 76 deildaleikir: 54 leikir í A-deild og 22 leikir í B-deild

Bikarleikir eru 12. Deildabikar 8. Tveir leikir í Meistarakeppni KSÍ. Víkingur vann þann fyrri 1:0 árið 2022. Blikar vinna seinni 3:2 árið 2023. 

Efsta deild

Leikurinn á sunnudaginn verður 55. innbyrðis viðureign liðanna í efstu deild. Jafnt er á tölum: 19 Blikasigrar gegn 18 - jafnteflin eru 17.

Markaskorunin er 160 mörk: Blikar með 82 mörk gegn 78.

Kópavogsvöllur 50 ára

Kópavogsvöllur á 50 ára afmæli núna í júní. Vígsluleikur Kópavogsvallar var leikur Breiðabliks gegn Víkingum - Ólafsvíkur Víkingum, ekki Reykjavíkur Víkingum - 7. júní 1975.

Skráðir mótsleikir meistaraflokks karla á Kópavogsvelli frá upphafi eru 594. Sigurleikir eru 306 gegn 173 - jafnteflin eru 115. Yfirlit hér.

Heimaleikur Breiðabliks á sunnudaginn gegn Fossvogsliðinu verður því 595. mótsleikur meistarflokks karla á Kópavosgvelli.

Og svo þetta. Síðasta heimsókn Víkinga á Kópavogsvöll í mótsleik gegn Blikum var fyrir sléttu ári síðan, eða 30. maí 2024, en líkt og Breiðablik árið 2023, átti Víkingur R. mjög öflugt ár í Evrópukeppnum árið 2024 og lentu Víkingar í hremmingum með aðgengi að löglegum keppnisvelli á Íslandi. Laugardalsvöllur, heimavöllur Breiðabliks í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu árið 2023, var lokaður vegna endurnýjunar og niðurstaðan því sú að Víkingur leigði Kópavogsvöll af Kópavogsbæ til að spila 3 evrópuleiki á tímabilinu okt - des 2024. 

Heimaleikir okkar gegn Víkingum R. í efstu deild eru 27. Blikar leiða með 12 sigra gegn 5 - jafnteflin eru 10. Síðustu 5 heimsóknir Víkinga á Kópavogsvöll í 22 leikja móti:

02.06 19:15
2023
Breiðablik
Víkingur
2:2
28
1
A-deild | 10. umferð
Kópavogsvöllur | #

INTERNET (28)

2020: ekki leikið vegna Covid19

Leikmannahópur

Í leikmannahópi gestanna eru nokkuð margir leikmenn sem hafa spilað með Blikum: Karl Friðleifur Gunnarsson er uppalinn Bliki. Víkingur R. fékk Karl Friðleif til sín sem lánsmann 2021 og gerði svo samning við hann fyrir keppnistímabilið 2022. Fyrir keppnistímabilið 2021 söðlaði Davíð Örn Atlason um úr Víkinni og gerði samning við Breiðablik. Um haustið náðu félögin samkomulagi um félagaskipti hans yfir í Fossvoginn aftur. Í þjálfarteymi Víkinga er markmannsþjálfarinn Hajrudin Cardakilja sem varði mark Blika með miklum árangri frá 1992 til 1996, en Cardakilja flúði heimaland sitt  vegna stríðsátaka og kom til okkar fyrir keppnistímabilið 1992. Hann á 107 mótsleiki að baki í Breiðablikstreyjunni.

Leikmannahópur Breiðabliks

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins er fæddur á Siglufirði og bjó þar til 23 ára aldurs. Hann var aldrei mikill íþróttamaður en hafði gaman af að vera á skíðum og reyndi líka fyrir sér í badminton. Á Siglufirði  var öflugt knattspyrnulið sem hét KS og þar voru margir góðir leikmenn. Held það hafi verið 1962 sem þeir unnu aðra deildina og áttu þá að spila í efstu deild, en sigurinn í síðasta leik var dæmdur af þeim, vegna þess að einn leikmaðurinn var of ungur til að spila með meistaraflokki. Þetta var bróðir Haraldar Erlendssonar. Mynd: Haustgolf með Haraldi Erlendssyni og Hugo Rasmus.

Man fyrst eftir að hafa haft áhuga á Breiðablik upp úr 1970. Með liðinu léku þá m.a. frændi minn Magnús Steinþórsson og Siglfirðingurinn Haraldur Erlendsson. Við bjuggum í Noregi í nokkur ár og þar starfaði ég abcfyrir íþróttafélagið á staðnum bæði í skíðadeild og ratleiksdeild.Þetta var skemmtilegur og gefandi tími, en allt skipulag sjálboðaliðastarfs var með miklum ágætum. Eftir að ég flutti heim frá Noregi 1987 varð Breiðablik mitt lið og hefur verið síðan. Sat í stjórn Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks um 1990 m.a. þegar liðið vann sig upp í úrvalsdeild. Bjarni Þórmundsson var þar formaður og Hannes Jónsson (seinna formaður KKÍ) var ritari. Þetta voru skemmtilegir menn með mikinn metnað fyrir sitt félag.

Skiltauppsetning á Kópavogsvelli með vöskum Blikum. 

Frá 1997 hef ég stundað golf af mikilli ákef og er enn að. Frá 1992 hefur knattspyrnudeildin átt hug minn allann og veitt mér margar ánægjustundir. Ég hef eignast marga góða “fótboltavini” á þessum árum og eru Guðmundur Jóhannesson og Gylfi Þór Sigurpálsson þar fremstir í flokki.

Guðmundur Þóroddsson - Hvernig fer leikurinn?

Leikurinn á sunnudag verður meiriháttar skemmtun og hart barist, Breiðablik vinnur 3 - 2. Held að Víkingar séu ennþá í sárum eftir að hafa tapað fyrir okkur á heimavelli í lokaleiknum í fyrra.

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Guðmundur Þórodsson staddur á Látrabjargi um mitt sumar 2022. 

Dagskrá

Kópacabana mætir!

Hilmar Jökull, sem er búinn að reyna að hætta sem formaður Kópacabana þrisvar sinnum, hefur enn einu sinni ákveðið að virkja stemninguna og hefur þetta að segja við Blika:

„Kæru Blikar, það er ekki nóg að vera áhorfandi, við þurfum ÖLL að vera stuðningsmenn. Á sunnudaginn næsta sýnum við hvað í okkur býr. Ég man ennþá eftir kvöldinu 27. október þegar 250 herskáir Blikastuðningsmenn mættu í víkina og tóku þar yfir. Við í Kópacabana ætlum að hita upp í grænu stofunni fyrir leik og þið þekkið flest öll lögin okkar, þannig hefjið upp raust og syngið með svo strákarnir finni fyrir alvöru STUÐNING!“ Mynd: Hafliði Breiðfjörð

Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli kl.19:15 á sunnudagskvöld. 

Miðasala er á: Stubb

Mætum í stúkuna á Kópavogsvelli og hvetjum okkar menn til sigurs.

Kópavogsvöllur opnar 17:30. Blikaborgarar á grillinu. Brasserie Kársnes vagninn mætir. Trúbadorarnir Arnþór og Bjarki frá 18.15. Græna stofan opin. 

Stöð 2 Sport sýnir leikinn fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. 

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

PÓÁ

Klippur úr 1:1 leik liðanna í síðustu heimsókn Víkinga á Kópavogsvöll í Bestu deildinni 30. maí í fyrra.

Til baka