Fyrsti heimaleikur tímabilsins er á föstudaginn! Skagamenn koma til okkar í blíðuna á Kópavogsvöll og við ætlum að fylla stúkuna og hvetja strákana til sigurs!
Stigataflan eftir fyrstu umferð - Blikar í 4. sæti
Leikmannahópur Breiðabliks 2025
Um leikmenn
Okkar maður Viktor Örn Margeirsson lék sem lánsmaður hjá ÍA hálft tímabil árið 2017. Hjá gestunum er það Gísli Eyjólfsson sem á langan og glæsilegan í grænu Breiðabilikstreyjunni. Hann spilaði 262 mótsleiki fyrir félagið og er uppalinn Bliki. Lesa má nánar um feril Gísla Eyjólfs í kveðjupistli sem birtist hér á stuðningamannasíðunni blikar.is 6.2.2024 þegar hann söðlaði um og hélt til Halmstad í Svíþjóð.
Tölfræði
Innbyrðis leikir Breiðabliks og ÍA í öllum mótum frá fyrsta leik árið 1965 eru 131 leikir. Skagamenn leiða með 66 sigra gegn 42 sigrum Blika - jafnteflin eru 23.
Frá 1965 til 2000 unnu Skagamenn nánast alla mótsleiki liðanna þ.m.t. 20 leiki af 35 innbyrðis leikjum liðanna í Litlu bikarkeppninni sem Albert Guðmundsson átti stóran þátt í að setja á laggirnar, en hann var á þeim tíma spilandi þjálfari Hafnfirðinga (ÍBH). Albert gaf farandbikar til keppninnar. Mótið var hugsað sem æfingamót fyrir „utanbæjarlið" áður en Íslandsmótið hæfist, til mótvægis við Reykjavíkurmótið. Keppnin stóð yfir í 34 ár - frá 7. maí árið 1961 og lauk í maí 1995. Samtals voru spilaðir 850 leikir í Litlu bikarkeppninni. Árið 1996 hófst síðan nýtt mót, Deildabikarkeppni KSÍ (Lengjubikarinn), og hún tók því raun við af Litlu bikarkeppninni en þar voru hins vegar öll lið með, utan Reykjavíkur sem innan. Skagamenn sigruðu Breiðablik 3-1 í fyrsta úrslitaleik Deildabikarsins sem leikinn var á grasvelli FH-inga í Kaplakrika um miðjan maí 1996.
Efsta deild frá 1971
Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi eru 66. Skagamenn leiða með 35 sigra gegn 22 sigrum Blika, jafnteflin eru 9.
Efsta deild frá 2006
Frá endurkomu Blika upp í efstu deild árið 2006 fellur vinningshlutfalið með Blikum: 15 sigrar, 8 töp og 5 jafntefli í 28 viðureignum.
Síðustu 5 leikir liðanna í efstu deild á Kópavogsvelli
Stuðningsmaðurinn
SpáBliki leiksins gegn ÍA segist vera grjótharður og uppalinn Bliki og því alltaf spenntur þegar nýtt tímabil fer af stað. Hér á árum áður var vorboðinn ljúfi þegar innanhússkórnir breyttust í utanhússkó, sem notaðir voru nær daglega á malbikinu við Vallargerði, þar sem Valdi gamli var allt í öllu. Nú, þar sem skórnir eru löngu komnir á hilluna, er það Besta Deildin sem færir okkur vorið.
Myndir: Ívar fagnar marki sínu í leik gegn Þrótti á Kópavogsvelli árið 2002. Á mynd til hægri er Ívar í dauðafæri gegn Hjörvari Hafliðasyni í leik gegn Valsmönnum árið 1999. Snillingurinn Ívar Sigurjónsson lék 168 mótsleiki með Breiðabliki á árunum 1995–2003. Hann er einn af markahæstu leikmönnum félagsins með 61 mark og fékk viðurkenningu fyrir þann árangur í hófi á vegum deildarinnar og blikar.is árið 2017: 50 Marka Klúbburinn – Blikar.is
Ég var beðinn að rifja upp minningu frá Breiðablik og það fyrsta sem skaut upp í kollinn var skemmtilegt moment árið 1986 þegar við Blikar unnum Tommamótið í Eyjum – bæði í A og B liðum. Yfirburðirnir voru það miklir að í miðjum leik þá lá Loftur markvörður í grasinu bakvið markið og var að gæða sér á hundasúrum!
Ívar Sigurjónsson - Hvernig fer leikurinn?
Loksins er komið að fyrsta heimaleiknum á þessu tímabili og mikil tilhlökkun að komast á völlinn. ÍA er andstæðingurinn, sem hefur styrkt sig töluvert fyrir þetta ágæta tímabil og fer þar væntanlega okkar maður Gísli Eyjólfsson fremstur meðal jafningja. Þrátt fyrir það tel ég mína menn koma vel peppaða til leiks og sækja 3 stig í hörkuleik með 2-1 sigri. Mörkin koma frá Kristófer Inga og Ágústi Orra okkar megin en ætli Gísli komi ekki vel gíraður í leikinn og setji eitt á sínum gamla heimavelli. Væntanlega það gíraður að hann á líka eftir að krækja í 2 gul í leiknum og fara snemma í bað! Við erum með fína blöndu af ungum og eldri reyndari leikmönnum, ásamt öflugu þjálfarateymi, sem ég hef fulla trú á að geri góða hluti í sumar. Treysti því að sem flestir sjái sér fært að mæta á völlinn í sumar og styðja strákana okkar.
ÁFRAM BREIÐABLIK
SpáBlikinn Ívar Sigurjónsson með forsetahjónunum Birni Skúlasyni og Höllu Tómasdóttur
Dagskrá
Miðasala á leikiinn er á Stubb.
Besta leiðin er að tryggja sér árskort á völlinn. Árskort má kaupa Hér
Upphitun í Grænu stofunni hefst kl.16:30 - Óli Skúla þjálfari mætir, fer yfir byrjunarlið og leikplanið fyrir leik kvöldsins.
ískaldur á krana og lukkuhjól fyrir þá allra hörðustu. . Bestu borgararnir í sjoppunni. Naut og béarnaise frá Brasserie Kársnes vagninum. Treyjur, treflar og fleira í Blikaskúrnum.
Veðrið lofar góðu, sól og logn - bongóblíða á pallinum !
Flautað verður til leiks á Kópavogsvelli á föstudag kl.18:00!
Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!
/PÓÁ