Áfram gakk! Það er komið að næsta leik okkar manna í Bestu deildinni. Um er að ræða leik við ÍBV. Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.18:00 á mánudaginn. 

Staðan í deildinni fyrir leiki helgarinnar

Sagan & Tölfræði

Fyrsti leikur Breiðabliks og ÍBV var æfingaleikur sem leikinn var í Vestmannaeyjum sumarið 1958 þegar Breiðabliksliðið var að stíga sín fyrstu skref á knattspyrnuvellinum -  knattspyrnudeild Breiðabliks var stofnuð 1957.

Leikur ÍBV og Breiðabliks á sunnudaginn verður 108. mótsleikur liðanna frá fyrsta mótsleik árið 1960. Eyjamenn leiða með 44 sigra gegn 41 og jafnteflin eru 21.  Til viðbótar þessum 107 leikjum eru margir óskráðir leikir liðanna í svonefndri Bæjarkeppni - keppni sem var leikin vor og haust í mörg ár í kjölfar eldgossins í Eyjum 1973, enda mikill vinskapur á milli Kópavogsbæjar og Vestmannaeyja.

Efsta deild

Innbyrðis leikir liðanna í efstu deild frá upphafi eru 67. Blikar leiða með 28 sigra gegn 22 - jafnteflin eru 17. 

Efsta deild í Kópavogi

Heilt yfir er Breiðablik með yfirhöndina í 33 heimaleikjum gegn ÍBV í efstu deild 19 sigra gegn 9 - jafnteflin er 5.

2026 - Blikar 20 ár samfellt í efstu deild

Breiðablik spilaði fyrst KSÍ mótsleik í 2.deild árið 1957. Breiðablik vann sig fyrst upp í efstu deild (1.deild) eftir yfirburðatímabil í 2.deildinni árið 1970. Frá 1971 hefur Blikaliðið leikið 40 tímabil, af 55 mögulegum, í efstu deild þar af samfellt 20 ár í röð eftir sannfærandi sigur í næst efstu deild árið 2005. 

Frá endurkomu Blikaliðsins upp í efstu deild árið 2006 hafa okkar menn yfirhöndina í 15 heimleikjum gegn Eyjaliðinu. Blikasigrar eru 9 gegn 2 og jafnteflin eru 4.

Hópurinn

Í leikmannahópi ÍBV liðsins er það Omar Sowe sem hefur spilað með Breiðabliki. Hann kom til Breiðabliks fyrir Íslandsmeistaraárið 2022 og spilaði 24 mótsleiki og skoraði 4 mörk með Blikum. Í Breiðablikshópnum er það Aron Bjarnason sem hefur leikið með Eyjaliðinu. Hann spilaði tvö keppnistímabil með Eyjapeyjum árin 2015 og 2016 en gekk svo til liðs við Breiðablik fyrir keppnistímabilið 2017.

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Breiðablikshópurinn 2026

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins fæddist í Kópavogshreppi fyrir margt löngu og hefur alið svo til allan sinn aldur í nágrenni við fæðingarstaðinn, þ. e. í austurhluta gamla Kópavogs. Knattspyrniferillinn hófst á Vallargerðisvelli snemma á sjöunda áratug síðustu aldar, þjálfarinn var alveg frægur, hafði varið mark Íslands í fyrsta landsleik þjóðarinnar. Ferillin var skrikkjóttur, um tíma áttum við okkar eigið félag í austurbænum (ÍK66) og það tíðkaðist á þessum árum að senda gríslingana í sveit á sumrin, ferlinum lauk eftir rúman áratug í nágrannasveitarfélagi. Níunda áratuginn var spáblikinn í ýmsum nefndar og stjórnarstörfum hjá knattspyrnudeildinni. Á Ýmsu gekk á þessum árum en það sem stendur upp úr er samstarfið með 2. flokki árið 1982, úrvals drengir sem náðu frábærum árangri.

Inngrip ritstjórnar: Myndir. Íslandsmeistarar Breiðabliks í 2. flokki árið 1982. Aftasta röð f.v.: Úlfar Ormarsson, Guðmundur Helgason, Magnús Magnússon, Heiðar B. Heiðarsson, Sveinn Axel Sveinsson, Jón Magnússon og Guðmundur Óskarsson. Miðröð f.v.: Karl Steingrímsson formaður knattspyrnudeildar, Sigurður Þorsteinsson þjálfari, Gunnlaugur Sigurbjörnsson, Björn Hilmarsson, Magnús Egilsson, Jón Magnússon, Guðjón Grétar Daníelsson, Sigurður Víðisson og Sigurvin Einarsson umsjónarmaður. Fremsta röð f.v.: Þorsteinn Geirsson, Lárus Jóhann Sigurðsson, Guðjón Reynisson fyrirliði, Elvar Örn Erlingsson, Steindór Elísson og Ingvaldur Gústafsson. Ekki á mynd Sævar Geir Gunnleifsson og Örn Guðmundsson. Stjórn knattspyrnudeildar Breiðabliks 1988. Neðri röð frá vinstri: Tryggvi Þórðarson, Sigurvin Einarsson formaður, Jóhann R. Benediktsson, Ari Þórðarson. Efri röð frá vinstri: Andrés Pétursson, Árni Guðmundsson, Ríkharð Ottó Ríkharðsson, Sigurður Thorarensen og Guðmundur J. Jóhannsson, Sigurvin í stúkunni á Fir Park á fyrsta Evrópuleik meistaraflokks karla gegn Motherwell 15. júlí 2010 - Evrópuleikirnir karlaliðs Breiðabliks í dag eru 61 gegn 29 félagsliðum í 26 löndum.

Sigurvin Einarsson - Hvernig fer leikurinn?

Vestmannaeyingar hafa löngum verið meðal okkar bestu vina á knattspyrnusviðinu, um árabil voru árlegir vináttuleikir milli liðanna, gjarnan kallaðir „bæjarkeppni”. Í stjórnarstörfunum var alltaf ánægjulegt að eiga samskipti við Eyjamenn (öfugt við suma) en vinskapurinn mun lagður til hliðar á mánudaginn. „Bara vinna…alveg sama hvernig” heyrist stundum sagt en það á að sjálfsögðu ekki við þegar Breiðablik er annarsvegar. Blikar eru nefnilega frægir fyrir að spila góðan bolta og það er alls ekki sama hvernig við vinnum leikina, sigur er afleiðing af vel spiluðum bolta og ág spái því að við fáum að sjá svoleiðis á mánudaginn! Fótboltinn er nú einu sinni „entertainment business” Hef trú á að við skorum fjögur mörk, táningar í stuði - en eyjapeyjar setja eitt eftir dómaramistök, spái því að í þessum leik verði það einu dómaramistökin. 4-1.

Áfram Breiðablik!

SpáBlikinn Sigurvin Einarsson í golfi á góðum degi í Mosó. 

Dagskrá

Vel tekið á móti öllum í Blikaskúrnum. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.

Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.18:00 á mánudagskvöld!

Miðasala á leikinn er á Stubb

Áfram Blikar! Alltaf - alls staðar!

/PÓÁ

Klippur úr síðustu heimsókn Eyjamanna á Kópavogsvöll.