Næsti leikur Blika í Bestu deildinni er gegn Keflvíkingum á mánudaginn. Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi kl.19:15!

Miðasala á Stubbur app: Stubbur

Staðan í Bestu deildinni eftir 13 umferðir er að Blikar eru með 22 stig í 4. sæti og Keflvíkingar með 16 stig í 6. sæti eftir 13 umferðir:

Sagan & Tölfræði

Lið Keflavíkur (áður ÍBK) er sá andstæðingur sem Breiðablik hefur oftast leikið gegn frá því að Breiðablik byrjaði að keppa í fótbolta árið 1957 - leikurinn í Kópavogi á mánudaginn verður 135. mótsleikur liðanna frá upphafi.

Fyrsti innbyrðis leikur liðanna var í gömlu 2. deildinni á Njarðvíkurvelli í lok júní árið 1957. Leikurinn var annar mótsleikur meistaraflokks Breiðabliks frá upphafi, en knattspyrnudeild Breiðabliks var stofnuð 1957. 

Fyrsti innbyrðis leikur liðanna í 1. deild var á Keflavíkurvelli um miðjan júní árið 1971 - árið sem Breiðablik lék fyrst í efstu deild. 

Heildarfjöldi mótsleikja liðanna í deildum (A-deild 64 / B-deild 7), Bikar(10), Deildabikar(9), Litli bikarinn(37), .Net mót(6) eru 134 leikir. Blikasigrar eru 53 gegn 56 - jafnteflin eru 25. Nánar.

Efsta deild

Innbyrðis leikir í A-deild frá upphafi (1971) eru 64 leikir. Allt jafnt - Blikasigrar eru 24 gegn 24 og jafnteflin eru 16. 

Innbyrðis leikir í A-deild í Kópavogi er 32 leikir: 14 sigar, 9 jafntefli, 9 töp,

Blikar 20 ár samfellt í efstu deild

Breiðablik spilaði fyrst KSÍ mótsleik í 2.deild árið 1957. Breiðablik vann sig fyrst upp í efstu deild (1.deild) eftir yfirburðatímabil í 2.deildinni árið 1970. Frá 1971 hefur Blikaliðið leikið 40 tímabil, af 55 mögulegum, í efstu deild þar af samfellt 20 ár í röð eftir sannfærandi sigur í næst efstu deild árið 2005. 

Innbyrðis viðureignir Breiðabliks og Keflavíkur í efstu deild frá 2026 eru 29 leikir: 15 sigar, 6 töp og 8 jafntefli. 

Í Kópavogi frá 2006 eru leikirnir 14: 8 sigar, 2 töp og 4 jafntefli

Síðustu þrír leikir liðanna í efstu deild í Kópavogi: 

S
Breiðablik
2 1
Keflavík
A-deild 20. umferð Kópavogsvöllur 20.08.2023
1
10
S
Breiðablik
4 1
Keflavík
A-deild 1.umferð Kópavogsvöllur 19.04.2022
42
1
22
S
Breiðablik
4 0
Keflavík
A-deild 3. umferð Kópavogsvöllur 13.05.2021
40
1
23

Hópurinn

Tveir núverandi leikmenn Keflavíkurliðsins hafa spilað með Breiðabliki. Ernir Bjarnason er uppalinn Bliki. Hann lék 24 mótsleiki með Blikum á árunum 2013 til 2017. Sindri Snær Magnússon kom til Blika frá ÍR fyrir keppnistímabilið 2012. Hann spilaði 26 mótsleiki með Blikum 2012/2013. 

Í Blikahópnum á Ásgeir Helgi Orrason 27 leiki með gestaliðinu sem lánsmaður keppnistímabilið 2024. 

Breiðabliksteymið: Aðalþjálfari er Ólafur Ingi Skúlason. Aðstoðarþjálfari er Emil Pálsson. Jón Guðni Fjóluson er transition þjálfari. Styrktarþjálfari er Helgi Guðfinnsson. Haraldur Björnsson er markmannsþjálfari liðsins. Sjúkraþjálfari er Særún Jónsdóttir frá Sjúkraþjálfuninni Sporthúsinu. Kristinn Orri Erlendsson er nuddari liðsins. Liðsstjórar eru Brynjar Dagur Sighvatsson og Dagur Elís Gíslason.

Leikmannahópur Breiðabliks 2026

Stuðningsmaðurinn

SpáBliki leiksins varð aldrei meira en meðalgutlari með yngri flokkunum og mátti eiginlega hafa mig allan við til þess að komast í liðið – eða bara að fá að æfa með meistaraflokknum þegar þar að kom. Ég náði samt að smygla mér inn í hópinn þegar Fritz Kissing var ráðinn þjálfari, skrökvaði því að ég kynni þýsku og „túlkaði“ fyrir hann í tvö ár (ef túlkun skyldi kalla). Ég þurfti líka að beita brögðum til þess að fá að vera með hjá Augnabliki. Ég nældi mér í viðurnefnið „Elton Augnabliks“ með því að skaffa búningana og auglýsa á þeim. Ég þóttist því eiga klúbbinn eins og Elton John Watford og naut tímabundið ákveðinna forréttinda fyrir vikið.

Gunnar Steinn algulur í öftustu röð á liðsmynd meistaraflokks karla árið 1981; auglýsingin á keppnistreyju Augnabliks árið 1985; og á leik Breiðabliks og Vals á Kópavogsvelli árið 2004

Gunnar Steinn Pálsson - Hvernig fer leikurinn?

Ég er alinn upp við það að halda alltaf með ungmennafélögum gegn „einkageiranum“ (Valur, KR, Fram, o.s.frv.). Hjartað slær því oft með Keflavík en auðvitað aldrei þegar við mætum þeim. Ég er alls enginn spámaður en óskhyggjan segir 5-1 sigur – það er kominn tími á stóran sigur þó liðið sé soldið vængbrotið þessa dagana. Ég kveð með hvatningunni sem ég hef lagt til að verði einkunnarorð okkar til langrar framtíðar: Áfram Blikar - alla leið! Einfalt og gott – getur lifað svona álíka lengi og mjólk er góð!

SpáBliki leiksins, Gunnar Steinn Pálsson, og synir á Blikar Open 2026

Dagskrá

Vel tekið á móti öllum í Blikaskúrnum. Kaldur á krana í Grænu stofunni og klassísku borgararnir frá Kjöthúsinu á sínum stað í sjoppunni.

Flautað verður til leiks á Eikarvellinum í Kópavogi á mánudaginn kl.19:15!

Miðasala á Stubbur app: Stubbur

Áfram Blikar - alla leið!

/PÓÁ

Klippur frá síðustu heimsókn Keflvíkinga í Kópavoginn í lok maí 2023.